Flýtilyklar
Menning

Af nógu er að taka þegar listir og menning eru annarsstaðar.
Landinn virðist óþreytandi þegar kemur að listsköpun. Allt frá gjörningum til myndlistasýninga má finna vítt og breytt um landið á ólíklegustu stöðum og tónleikar eru haldnir í stærri tónlistarhúsum og jafnvel heima í stofu flytjenda.
Gestastofur
Við flestar stærri og vinsælli náttúruperlur Íslands eru gestastofur.
Þar er hægt að nálgast upplýsingar og versla minjagripi. Gestastofur eru einnig við ýmis söfn og menningarsetur.
Handverk og hönnun
Heilmikil gróska er í hverskonar handverki og hönnun um allt land. Úrvalið er afar margbreytilegt og óhætt að segja að sköpunargleði landsmanna sé óþrjótandi. Einstakt handverk og hönnunarvöru má nálgast með ýmsum hætti, meðal annars gegnum handverksmarkaði, sérverslanir eða gegnum vefsíður listamanna.
Setur og menningarhús
Víða um land eru menningarmiðstöðvar.
Þar fara fram ýmsir listviðburðir og fræðsla fyrir alla aldurshópa.
Í stærri byggðalögum á Reykjanesi má finna menningarmiðstöðvar sem bjóða uppá fjölbreytta uppákomur og viðburði allt árið.
Söfn
Á Íslandi eru allskonar áhugaverð söfn.
Flest þeirra eru nokkuð hefðbundin og má þar nefna bóka- lista- og minjasöfn, önnur eru óhefðbundnari og eru tileinkuð draugum og ýmsu öðru forvitnilegu.
Sýningar
Það er enginn skortur á hverskonar sýningum vítt og breitt um landið og þær eru tileinkaðar öllu frá leikföngum upp í jarðskjálfta og eldgos. Listsýningar eru líka fjölbreytilegar og þær má finna á ýmsum vettvangi.
Á Reykjnesi má finna fjölbreyttar sýningar sem einkenna svæðið, hvort sem um er að ræða jarðsögu, menningu svæðisins eða sögu forfeðra okkar sem byggðu landið.