Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Bjartmar og Bergrisarnir

1. desember kl. 20:00-22:00

Upplýsingar um verð

3.900

Það er Hljómahöll mikill heiður að segja frá því að hinn eini sanni Bjartmar Guðlaugsson kemur fram á tónleikum í Stapa í Hljómahöll þann 1. desember ásamt Bergrisunum.

Bjartmar þarf vart að kynna fyrir nokkrum tónlistarunnanda en lög hans og texta þekkja allir! Bjartmar hefur gefið út 16 sólóplötur á ferli sínum og er því af nægu að taka. Hver veit nema að lög á borð fyrir Týnda kynslóðin, Ég er ekki alki, Súrmjólk í hádeginu, Fimmtán ára á föstu, Járnkarlinn, Sumarliði er fullur, Þannig týnist tíminn, Negril eða hans nýjasta lag Af því bara fái að hljóma í Stapa þann 1. desember?

Bergrisarnir eru:
- Bjartmar Guðlaugsson
- Júlíus Freyr Guðmundsson
- Arnar Gíslason
- Birkir Rafn Gíslason
- Daði Birgisson

Húsið opnar kl. 19:00 og tónleikar hefjast kl. 20:00

Miðasala er hafin á tix.is!

GPS punktar

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Staðsetning

Hljómahöll

Sími