Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Sjóarinn síkáti

10.-12. júní

Sjómanna- og fjölskylduhátíðin Sjóarinn síkáti í Grindavík hefur fest sig í sessi sem ein skemmtilegasta og fjölbreyttasta bæjarhátíð landsins.

Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og fjölmargt í boði fyrir alla aldurshópa. Sjóarinn síkáti er fjölskylduhátíði þar sem ungir sem aldnir geta fundið eitthvað við sitt hæfi frá morgni til kvölds.

Upplýsingar um viðburði á hátíðinni er að finna inn á heimasíðu Grindavíkurbæjar eða á sjorainnsikati.is.

Föstudagurinn einkennist af hátíðarhöldum og þátttöku heimamanna. Íbúar skreyta götur og hús í litum hverfa og klæða sig í samræmi við lit síns hverfis. Farin er Litaskrúðganga sem markar upphaf hátíðarhaldanna niður að hátíðarsvæðinu við Hafnargötu. Íbúar og gestir safnast saman á hátíðarsvæðinu og taka þátt í fjöldasöng. Kvöldið endar á Bryggjuballi á hátíðarsvæðinu.

Á laugardeginum er boðið uppá fjölbreytta barnadagskrá, hægt er að fara í skemmtisiglingu, fjöldi leiktækja eru í boði fyrir gesti og andlitsmálun fyrir þá sem vilja. Tónleikar og viðburðir eru á veitingastöðum bæjarins og á hátíðarsviðinu verður fjölbreytt dagskrá fyrir börn á öllum aldri.

Sunnudagurinn einkennist af hátíðarhöldum Sjómannadagsins, til heiðurs sjómönnum og fjölskyldum þeirra. Hátíðarmessa verður í Grindavíkurkirkju þaðan sem gengið verður í Sjómannagarðinn þar sem krans verður lagður að minnisvarðanum Von. Þaðan liggur leiðin að hátíðarsvæðinu og eftir athöfn þar hefst fjölbreytt barnadagskrá. Leiktæki, andlitsmálning, fiskabúr með nytjafiskum og furðufiskum verða við höfnina. Eldri borgarar í Víðihlíð halda daginn hátíðlegan og fá til sín góða gesti.

Dagskrá og frekari upplýsingar:

Heimasíða Grindavíkurbæjar: www.grindavik.is/sjoarinnsikati

Vefsíða viðburðarins: www.sjoarinnsikati.is

Viðburðurinn á Facebook: www.facebook.com/sjoarinnsikati.is 

GPS punktar

N63° 50' 22.593" W22° 25' 56.464"

Staðsetning

Hafnargata 12A, Grindavík, Iceland

Sími