Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Átak til atvinnusköpunar

Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?

Á markað með snjallt nýsköpunarverkefni?

Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar. Veittir eru styrkir til nýsköpunarverkefna og markaðsaðgerða starfandi frumkvöðla og nýsköpunarfyrirtækja. 

Markmið verkefnisins: 

  • Að styðja við þróun nýsköpunarhugmynda á fyrri stigum sem hlotið gætu frekari fjármögnun sjóða og fjárfesta
  • Að styðja við undirbúning og framkvæmd markaðsaðgerða frumkvöðla og fyrirtækja

Sérstök áhersla er lögð á:

  • Verkefni sem eru nýjung og skapa ný störf
  • Ný verkefni í ferðamálum á sviði þjónustu, upplifunar og afþreyingar og geta stuðlað að því að dreifa ferðamönnum jafnar um landið

Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á vef nmi.is

Beðni um upplýsingar og aðstoð má senda á netfangið: hildur@nmi.is

Umsóknarfrestur er til kl. 12.00 á hádegi þann 18. apríl 2017