Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

FERÐAMENN SMAKKA KRANAVATN Á KEFLVÍKURFLUGVELLI

Í nýju myndbandi Inspired by Iceland er sýnt frá því þegar ferðamönnum á Keflavíkurflugvelli er boðið upp á mismunandi tegundir af kranavatni. Barþjónninn Georg Leite býður þar upp á garðslöngukranavatn, baðvaskskranavatn, þvottahússkranavatn og bílskúrskranavatn. Allt er þetta þó sama íslenska vatnið!

Erlendir ferðamenn voru hrifnir af þessum framandi drykk sem kranavatn er og höfðu orð á því hve hressandi hann væri. Það kom flestum á óvart þegar það var útskýrt fyrir þeim hvað kranavatn þýddi í rauninni.

Í herferðinni er lögð áhersla á að kynna íslenska vatnið sem lúxusvöru undir heitinu „Kranavatn” sem finna má ókeypis í næsta krana um allt land. Markmiðið er að draga úr óþarfa plastnotkun ferðamanna og vekja um leið athygli á gæðum íslenska vatnsins sem er eitt hreinasta og bragðbesta kranavatn í heimi. 

Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan: