Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Fjárfestum í hæfni starfsfólks með fræðslu og þjálfun

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum bjóða ferðaþjónustufyrirtækjum að taka þátt í verkefni til að auka hæfni starfsmanna í greininni.

Hæfnisetur ferðaþjónustunnar og Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum bjóða ferðaþjónustufyrirtækjum að taka þátt í verkefni til að auka hæfni starfsmanna í greininni.

Hæfnisetrið er samstarfsverkefni hagsmunaaðila í ferðþjónustunni til að auka hæfni starfsmanna ferðaþjónustunnar og er í samvinnu um fræðsluverkefni við símenntunarmiðstöðvar á landsvísu. Hlutverk Hæfniseturs ferðaþjónustunnar er að starfa á forsendum ferðaþjónustunnar til að auka hæfni starfsfólks og þar með auka gæði, fagmennsku, starfsánægju og arðsemi greinarinnar. Hæfnisetrið var sett á stofn í janúar 2017 með undirritun þjónustusamnings ráðherra ferðamála, Þórdísar Kolbrúnar R. Gylfadóttur við Fræðslumiðstöð atvinnulífsins.

Valdís Steingrímsdóttir, sérfræðingur hjá Hæfnisetrinu segir að skilaboðin frá erlendum ferðamönnum væru skýr, það þarf að bæta gæði í íslenskri ferðaþjónustu. „Samkvæmt könnun Ferðamálastofu frá árinu 2014 töldu um 40% erlendra ferðamanna að gæði ferðaþjónustu þyrfti að bæta. Við í Hæfnisetrinu teljum að ein mikilvægasta leiðin til þess sé að auka hæfni starfsfólks í greininni og það gerum við með markvissri þjálfun og fræðslu í samstarfi við fræðsluaðila“ segir Valdís. „Við leggjum áherslu á samvinnu við greinina, aðila vinnumarkaðarins, fræðsluaðila og stjórnvöld við að aðstoða fyrirtækjum að koma á markvissri fræðslu í fyrirtækjum, þróa leiðtogafræðslu og námslotur fyrir starfsmenn í ferðaþjónustu, þrepaskipt starfsnám og raunfærnimat í starfsgreinum ferðaþjónustunnar“ bætir Valdís við.

Á Reykjanesi er Hæfnisetrið í samstarfi við Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum (MSS) sem sér um framkvæmd verkefnisins. Ferðaþjónustufyrirtækjum er boðið að taka þátt í þessu tilraunaverkefni og verður MSS umsjónaraðili fræðslunnar, sem verður sérsniðinn að hverju fyrirtæki. MSS hefur á að skipa einvala liði sérfræðinga með mikla reynslu af þjálfun og fræðslu. Hæfnisetrið kemur að verkefninu með ráðgjöf og öðrum stuðningi.

Þörfin fyrir þjálfun og fræðslu í fyrirtækjum verður metin og greind og í kjölfarið útbúin fræðsluáætlun eftir þörfum og óskum hvers fyrirtækis og í samráði við stjórnendur og starfsmenn. MSS sér um að koma áætluninni í framkvæmd í nánu samstarfi við fyrirtækið og á forsendum þess.

„Fjárfesting í hæfni starfsfólks með fræðslu og þjálfun er grundvallaratriði í sókn íslensku ferðaþjónustunnar til að auka gæði, starfsánægju, framleiðni og arðsemi. Fjárfesting sem skilar sér fljótt“ segir Valdís að lokum.

Nánari upplýsingar um verkefnið og skráningu má finna hér.