Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Hvað er svona merkilegt við mig?

Hádegiserindi um mikilvægi almannatengsla í markaðsstarfi
Sváfnir og Krisján
Sváfnir og Krisján

Þriðjudaginn 10. nóvember munu fulltrúar H:N markaðssamskipta mæta á Reykjanesið vera með hádegiserindi um mikilvægi almannatengsla í markaðsstarfi.

Fyrirlesarar dagsins verða Sváfnir Sigurðarson og Kristján Hjálmarsson, almanna- og viðskiptatenglar á H:N Markaðssamskiptum. Sváfnir hefur áralanga þekkingu af markaðs- og almannatengslum. Hann hefur meðal annars starfað sem markaðsstjóri Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Borgarleikhússins. Kristján starfaði á Fréttablaðinu og Vísi.is í um 14 ára skeið, þar af sem fréttastjóri í sjö ár.

H:N Markaðssamskipti hlutu Lúðurinn, íslensku markaðsverðlaunin, á síðasta ári fyrir árangursríkustu herferðina. Herferðin var unnin fyrir SÍBS og byggði að miklu leyti á almannatengslum.

Erindið fer fram milli kl. 12 og 13 í Frumkvöðlasetrinu Eldey á Ásbrú í Reykjanesbæ. Veitingar verða í boði fyrir fundarmenn frá Hjá Höllu í Grindavík. Áhugasamir eru vinsamlegast beðnir um að skrá þátttöku hér fyrir kl. 16.00, mánudaginn 9. nóvember.

Allir eru hjartanlega velkomnir!