Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Óskað er eftir tilnefningum til viðurkenninga ferðaþjónustunnar á Reykjanesi 2018

Tilnefningar til nýsköpunar- og hvatningarverðlauna ferðaþjónustunnar á Reykjanesi og þakkarverðlauna ferðaþjónustunnar.

Líkt og undanfarin tvö ár munu Markaðsstofa Reykjaness og Reykjanes UNESCO Global Geopark veita viðurkenningar til einstaklings eða fyrirtækis sem starfa í ferðaþjónustu á Reykjanesi. Annars vegar sérstök hvatningarverðlaun fyrir nýsköpun í ferðaþjónustu en hins vegar viðurkenning fyrir vel unnin störf innan greinarinnar á svæðinu.

Óskað eftir tilnefningum til umræddra viðurkenninga. Tilnefningum ásamt stuttum rökstuðningi skal skilað á netfangið thura@visitreykjanes.is eða eggert@reykjanesgeopark.is fyrir 29. janúar nk.

Viðurkenningarnar verða afhentar fimmtudaginn 15. mars nk. á Vetrarfundi ferðaþjónustunnar á Reykjanesi. Fundurinn verður haldinn kl. 8.30-10.30 í Hljómahöll í Reykjanesbæ.

Viðurkenningarnar hafa verið veittar síðustu tvö ár og hafa þessir einstaklingar, fyrirtæki og verkefni orðið fyrir valinu:

Þakkarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi

2017: Johan D Jónsson, Reykjanesbæ

2016: Reynir Sveinsson, Sandgerði

Nýsköpunar- og hvatningarverðlaun ferðaþjónustunnar á Reykjanesi

2017: Veitingastaðurinn Vitinn og Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Suðurnesjum

2016: Listahátíðin Ferskir vindar í Garði