Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

The Retreat hlýtur fimm stjörnu flokkun

The Retreat hótel Bláa Lónsins hefur fyrst íslenskra hótela hlotið fimm stjörnu flokkun samkvæmt viðurkenndu hótelflokkunarkerfi. Hótelið margverðlaunaða fær fimm stjörnu Superior flokkun og Hótel Grímsborgir í Grímsnesi fékk sömuleiðis viðurkenningu sem fimm stjörnu hótel. Ferðamálastofa greinir frá.

 

Tímamót í íslenskri ferðaþjónustu
Um nokkur tímamót er að ræða. Gæðamál eru íslenskri ferðaþjónustu mikilvæg og hafa stjórnvöld lagt áherslu á þau í stefnumótun fyrir atvinnugreinina. Þetta er því ánægjulegur áfangi á þeirri vegferð.

Vakinn eina viðurkennda kerfið
Hótelin eru vottuð samkvæmt gæðakerfi Vakans en það er eina viðurkennda hótelflokkunarkerfið hérlendis. Samkvæmt reglugerð um gististaði er óheimilt að auðkenna sig með stjörnum eða öðrum merkjum sem gefa til kynna hvers konar gæðaflokkun nema að undangenginni formlegri gæðaúttekt þriðja aðila sem viðurkennd er af stjórnvöldum.

VAKINN er gæða- og umhverfisvottunarkerfi sem Ferðamálastofa stýrir en markmið þess er að efla gæði, öryggi og umhverfisvitund í ferðaþjónustu á Íslandi ásamt því að byggja upp samfélagslega ábyrgð ferðaþjónustufyrirtækja. Gæðaviðmið Vakans fyrir hótel byggja á gæðaviðmiðum frá evrópska Hotelstars kerfinu sem leitt er af Hotrec, regnhlífarsamtökum hótela og veitingahúsa í Evrópu.  Á heimasíðu Vakans má finna nánari upplýsingar um gæðakerfið og lista yfir þau hótel og gististaði sem uppfylla kröfur til að merkja sig stjörnugjöf.