Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Við óskum eftir öflugum markaðsmanni

Markaðsstofa Reykjaness leitar eftir öflugum starfsmanni í markaðsteymið sem hefur metnað og áhuga á ferðaþjónustu.
Eldvörp   Mynd: Snorri Tryggvason
Eldvörp Mynd: Snorri Tryggvason

Markaðsstofa Reykjaness leitar eftir öflugum starfsmanni í markaðsteymið sem hefur metnað og áhuga á ferðaþjónustu. Um er að ræða tímabundna ráðningu til eins árs.

Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni sem snúa að markaðssetningu á Reykjanesi sem áfangastað, m.a. umsjón og uppfærslu á vefsíðum og samfélagsmiðlum, umsjón og vinnu við útgáfu kynningarefnis sem og samskipti við ferðaþjónustuaðila.

Viðkomandi þarf að geta gengið í öll verkefni markaðsstofunnar er snúa að markaðs- og kynningarmálum.

Helstu verkefni:

  • Umsjón með kynningar- og markaðsmálum
  • Samskipti við hagsmunaðila, samstarfs- og stuðningsstofnanir 
  • Skipulagning og þátttaka í sýningum og ráðstefnum innanlands og erlendis
  • Umsjón með heimsóknum blaðamanna og ferðaskrifstofa
  • Umsjón með vefsíðum og samfélagsmiðlum

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af markaðs- og ferðamálum mikilvæg
  • Metnaður í starfi og skipulagshæfileikar
  • Lipurð í mannlegum samskiptum
  • Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ritun og orði skilyrði, önnur tungumál kostur
  • Mjög góð þekking á notkun samfélagsmiðla

Umsóknarfrestur er til og með 19. janúar n.k.

Umsóknir skal senda til Markaðsstofu Reykjaness á netfangið markadsstofa@visitreykjanes.is. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Allar frekari upplýsingar gefa Þuríður Aradóttir, thura@visitreykjanes.is og Eggert Sólberg Jónsson, eggert@reykjanesgeopark.is.

Markaðsstofa Reykjaness er sjálfseignarstofnun sem starfar náið með Reykjanes Unesco Global Geopark, Heklunni, atvinnuþróunarfélagi Suðurnesja, ferðaþjónustufyrirtækjum, stuðningsstofnunum og sveitarfélögum á Suðurnesjum að markaðssetningu svæðisins, eflingu ferðaþjónustu, fjölgun ferðamanna og lengingu dvalar þeirra með heildarhagsmuni atvinnulífsins og samfélagsins á Suðurnesjum að leiðarljósi.

Hér er auglýsingin á pdf formi.