Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Lausnamótið Hacking Reykjanes haldið í mars

Lausnamótið Hacking Reykjanes verður haldið 17.-19. mars n.k.
Viltu móta hugmyndir sem leysa áskoranir samtímans, kynnast nýju fólki og eiga skapandi og kröftuga daga sem veita þér innblástur?
 
Hacking Reykjanes er vettvangur fyrir hugarflug nýrra hugmynda og opinn öllum sem hafa áhuga á nýsköpun á Suðurnesjum.
 
Lausnamótið Hacking Reykjanes fer fram dagana 17. - 19. mars á netinu. Þátttakendur vinna að því að þróa lausnir við fjórum áskorunum:
  • Orka og jarðvarmi. Hvernig getum við aukið verðmætasköpun með því að nýta orkuna á Reykjanesi?
  • Sjávarútvegur og bláa hagkerfið. Hvernig getum við stuðlað að nýsköpun og þróun í sjávarútvegi og tengdum greinum?
  • Hringrásarhagkerfið. Hvernig getum við aukið verðmætasköpun þvert á atvinnugreinar með aukinni fullvinnslu afurða til að koma í veg fyrir að auðlindir verði að úrgangi?
  • Alþjóðaflugvöllur og þjónusta. Hvar liggja tækifærin í nýsköpun og aukinni þjónustu í tenglum við alþjóðaflugvöll, ferðaþjónustu og þjónustu við farþega og flug?
Markmið lausnamótsins er að efla frumkvöðlastarf og sköpunarkraft á svæðinu og þannig stuðla að nýjum verkefnum og viðskiptatækifærum. Lausnamótinu er ekki síður ætlað að vekja athygli á því öfluga frumkvöðlasamfélagi sem er á Reykjanesi.
 
Útkoman úr lausnamótinu getur verið stafræn lausn, vara, þjónusta, verkefni, hugbúnaður, vélbúnaður, markaðsherferð, eða annað í þeim dúr.
Virkjum skapandi krafta svæðisins!

Skráning hefst 12. janúar á www.hackinghekla.is
 
Hacking Reykjanes er samstarfsverkefni Hacking Hekla, Samband sveitafélaga á Suðurnesjum og Hugmyndaþorps. Verkefnið er styrkt af Lóu.
Aðrir samstarfsaðilar eru Markaðsstofa Reykjaness, Heklan - atvinnuþróunarfélag Suðurnesja og Reykjanes jarðvangur.
 
//
 
Hacking Reykjanes is a rural hackathon that takes place from 17th-19th of march in Reykjanes. The task for our participants is to find various innovative solutions in regard to the challenges of the area.
 
The outcome of the hackathon can be a digital solution, a product, a service, software, hardware, a project, a marketing campaign, or anything similar.
Registration starts 12th of January at www.hackinghekla.is
 
Hacking Reykjanes is a joint project of Hacking Hekla, The Suðurnes association of municipalities, and Hugmyndaþorp. The project is funded by Lóa.