Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Jarðhræringar og útivist á Reykjanesi

Í dag, miðvikudaginn 24. febrúar, urðu nokkrir stórir skjálftar á Reykjanesskaganum og fjöldi smærri skjálfta hafa fylgt þeim. Fleiri skjálftar geta orðið á svæðinu og því er brínt að fara að öllu með gát þegar farið er um svæðið.
Keilir - mynd: Þráinn Kolbeinsson

Reykjanesið er jarðfræðilega lifandi svæði og spennandi fyrir áhugasama að skoða sig um og kanna vegsummerki slíkra atburða. Þessum atburðum getur hins vegar fylgt ákveðin hætta eins og reynslan hefur sýnt og því mikilvægt að fara varlega og fylgja tilmælum og fyrirmælum yfirvalda.

Gróthrun getur átt sér stað í fjallendi og við klettaveggi. Vinsamlegast gætið varúðar og verið ekki á ferð á þeim svæðum þar sem slíkt getur átt sér stað. Þá er jafnframt mikilvægt að fylgja merktum stígum og gönguleiðum á undirlendinu, í og við jarðhitasvæðin, þar sem nýjar sprungur geta gert var við sig. 

Frekari upplýsingar má finna inn á vef almannavarna:
- viðbrögð við jarðskjálftum
- tillkynningar og fréttir frá almannavörnum (fréttir og tilkynningar koma einnig þar inn á ensku og pólsku)