Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Kynningarfundir ferðamálaráðherra 3. og 5. júní

Ferðamálaráðherra heldur fundi í Reykjavík og á Akureyri til að kynna annan áfanga verkefnis á vegum ráðuneytisins um mat á álagi vegna fjölda ferðamanna og stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030.

Á haustmánuðum 2017 ákvað ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að ráðast í viðamikið verkefni um viðmið sjálfbærni vegna fjölda ferðamanna á Íslandi m.t.t. innviða og samfélags. Slíkt verkefni hefur ekki verið unnið áður á landsvísu sem gerir það einstakt á heimsvísu. Fyrsta áfanga verkefnisins lauk haustið 2018 með skilgreiningu hátt í sjötíu vísa um sjálfbærni út frá efnahagslegum, umhverfislegum og samfélagslegum þáttum, í því skyni að leggja mat á hversu mörgum ferðamönnum er hægt að taka á móti á Íslandi. 

Annar áfangi verkefnisins hófst í beinu framhaldi en hann snerist um að leggja mat á álag vegna fjölda ferðamanna á Íslandi m.t.t. ástands og getu innviða, umhverfis og samfélags. Í þeim áfanga var unnið að gildissetningu vísa um sjálfbærni úr fyrsta áfanga á sviði efnahags, samfélags og umhverfis. 

Þeirri vinnu er nú að mestu lokið og mun ráðherra kynna fyrstu drög niðurstaðna til umræðu ásamt sérfræðingum Eflu verkfræðistofu sem hafa unnið að verkefninu ásamt fjölda utanaðkomandi sérfræðinga. Ferðamálaráðherra mun jafnframt kynna fyrstu drög að stefnuramma ferðaþjónustunnar til 2030 sem unnið hefur verið að undanfarið í samvinnu stjórnvalda, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Samtaka ferðaþjónustunnar.

Þessi tvö verkefni leggja grunninn að framtíðarstefnumótun íslenskrar ferðaþjónustu 2020-2030 sem hefst í sumar og verður lokið vorið 2020. 

Fyrirhugað er að fundirnir verði tveir. Fyrri fundurinn verður haldinn í Reykjavík mánudaginn 3. júní frá kl. 08:30-12:00 á Grand Hótel. Síðari fundurinn verður haldinn á Akureyri miðvikudaginn 5. júní kl. 08:30-12:00 í Hofi. Fundirnir eru ætlaðir öllum hagaðilum í íslenskri ferðaþjónustu til kynningar og umræðu á þessum fyrstu drögum niðurstaðna.

Skráning á fundina fer fram hér eða á slóð https://forms.gle/unwpdRk53EABoBgTA

Fundunum verður jafnframt streymt á vef Stjórnstöðvar ferðamála www.stjornstodin.is

Dagskrá:

08:00 – 08:30           Kaffi og léttar veitingar
08:30 – 09:00           Ávarp ferðamálaráðherra Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur

  • Drög að stefnuramma í ferðaþjónustu til 2030
  • Fyrstu niðurstöður álagsmats fyrir fjölda ferðamanna á Íslandi.

09:00 – 09:30           Yfirferð yfir vinnuna

  • Markmið, aðferðir og vinnustofur – útskýring á aðferðum, framsetningu o.fl.

09:30 – 09:45           Þjóðhagslegar stærðir
09:45-10:00              Kaffihlé
10:00 – 10:40           Innviðir

  • Samgöngur,  veitur, úrgangsmál

10:40- 11:00             Umhverfi

  • Náttúrustaðir og loftslagsmál

11:00-11:20              Samfélagsmál og stoðþjónusta

  • Samfélagsáhrif, lögregla, heilsugæsla, húsnæðismál,

11:20-11:40              Samantekt
11:40-12:00              Umræður og fundarlok