Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Listagjöf um allt land

Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, býður upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt!

Gefðu listagjöf á Reykjanesi - athugið takmarkað framboð - bókanir opna í hádeginu, mánudaginn 14. desember.

Listahátíð í Reykjavík, með stuðningi frá Mennta- og menningarmálaráðuneyti, býður upp á aðra útgáfu af hinu vel heppnaða verkefni Listagjöf – að þessu sinni um land allt!

Frá og með hádegi næstkomandi mánudag, 14. desember, mun almenningur getað pantað Listagjöf fyrir ástvini á sérhönnuðu vefsvæði listagjof.listahatid.is. Gjöfin er án endurgjalds en takmarkast við eina pöntun á mann. Listagjafirnar verða sem fyrr segir nú í boði um land allt. Allt að 750 gjafir verða í boði og verða þær afhentar helgina 19.-20. desember.

Hver listagjöf er um það bil fimm til tíu mínútna flutningur á tónlist, dansi eða ljóðalestri frá mörgu af okkar allra besta listafólki. Sá eða sú sem bókar gjöfina sér til þess að viðtakandinn verði heima þegar gjöfin verður afhent og tekur að auki á móti listamanninum. Flutningurinn fer svo fram í öruggri covid-fjarlægð frá þiggjanda gjafarinnar, utandyra ef þess er nokkur kostur eða annars staðar þar sem hægt er að tryggja örugga fjarlægð.

Ath. Þangað sem listafólk kemst ekki í eigin persónu eða til þeirra sem treysta sér ekki til að taka á móti listafólki heim að dyrum verður í boði að panta listagjafir sem persónulegt myndsímtal.

Sjá nánar frétt af vef ráðuneytisins. 

Listagjöf um land allt from Reykjavik Arts Festival on Vimeo.