Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Opið fyrir umsóknir um styrki í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða

Nú er opið fyrir umsóknir um styrki úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða fyrir árið 2020. Umsóknarfrestur er til hádegis þann 29. október næstkomandi.

Hvað er styrkhæft?

Framkvæmdasjóðurinn styrkir verkefni á ferðamannastöðum í eigu eða umsjón sveitarfélaga jafnt sem einkaaðila sem uppfylla a.m.k. eitt af eftirfarandi skilyrðum:

a) Verkefnið er til uppbyggingar, viðhalds og verndunar mannvirkja og náttúru
b) Verkefnið er til framkvæmda sem varða öryggi ferðamanna og náttúruvernd
c) Verkefnið er til undirbúnings- og hönnunarvinnu vegna verkefna sem eru styrkhæf skv. liðum a eða b

Gæði umsókna

Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér vel þær reglur sem um sjóðinn gilda og vanda umsóknir sínar í hvívetna. Umsækjendum er bent á að kynna sér nýtt gæðamatsblað sjóðsins og reglugerð um Framkvæmdasjóð ferðamannastaða hér á vefnum undir www.ferdamalastofa.is/umsoknir.

Nýsköpunarmiðstöð Íslands mun veita umsækjendum leiðbeiningar við undirbúning og gerð umsókna þar til auglýstum umsóknarfresti lýkur.

Hvar ber að sækja um?

Umsóknum skal skilað rafrænt í gegnum Þjónustugátt Ferðamálastofu sem aðgengileg er á www.ferdamalastofa.is/umsoknir og þar er einnig að finna nánari upplýsingar um umsóknaferlið.