Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes jarðvangur hlýtur Erasmus+ styrk

Landskrifstofa Erasmus+ úthlutaði í október 14 metnaðarfullum verkefnum styrki fyrir nýtt tímabil í Erasmus+. Þar var Reykjanes jarðvangi úthlutað styrk á sviði leik-, grunn- og framhaldsskóla uppá rúmar 320 þús. Evrur, fyrir verkefnið Upcycling as a way to generate less waste and create value-added products in a creative way.
Fulltrúar Reykjanes jarðvangs; Berglind Kristinsdóttir, Daníel Einarsson og Þuríður Aradóttir Braun,…
Fulltrúar Reykjanes jarðvangs; Berglind Kristinsdóttir, Daníel Einarsson og Þuríður Aradóttir Braun, ásamt Rúnu Vigdísi Guðmarsdóttur, forstöðukonu Landskrifstofu Erasmus+ á Íslandi og Jóni Svani Jóhannssyni, verkefnasjóri skólahluta Erasmus+.

Landskrifstofa Erasmus+ úthlutaði í október 14 metnaðarfullum verkefnum styrki fyrir nýtt tímabil í Erasmus+. Þar var Reykjanes jarðvangi úthlutað styrk á sviði leik-, grunn- og framhaldsskóla uppá rúmar 320 þús. Evrur, fyrir verkefnið Upcycling as a way to generate less waste and create value-added products in a creative way.

Þetta er fyrsta Evrópuverkefni sem Reykanes jarðvangur leiðir, en verkefnið snýr meðal annars að þróun og miðlun á námsefni fyrir leik- og grunnskóla til að vekja áhuga á loftslagsmálum og endurvinnslu með nýsköpun í huga. Verkefnið fellur vel að áherslum svæðisins í tengslum við hringrásarhagkerfið.

Verkefnið hefst formlega í febrúar 2022 og stendur yfir fram í september 2024.

Daníel Einarsson er verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs og kemur til með að leiða verkefnið. „Það er ánægjulegt að finna fyrir þessum stuðningi Landskrifstofunnar við verkefnið og viðurkenning fyrir það þróunarstarf sem jarðvangurinn vinnur að. Við hlökkum til að takast á við verkefnið og mynda betri tengsl inn í skólana á Reykjanesi, en með þessu verkefni höfum við tækifæri til að efla kennslu í náttúru- og raunvísindum og styðja við kennara á svæðinu.

Jarðvangsfyrirtækið Geocamp Iceland er samstarfsaðili í verkefninu og kemur til með að vinna að frekari útfærslu verkefna innan svæðisins með jarðvanginum. „Með þessu verkefni erum við að formgera samstarf Reykjanes jarðvangs og Geocamp Iceland á sviði fræðslumála í jarðvanginum, en við höfum einnig verið í samstarfi við gerð Raungreinabúða á Reykjanesi ásamt Þekkingarsetri Suðurnesja. Auk þess erum við að vinna að verkefni sem snýr að gerð kennsluefnis fyrir jarðfræði í grunnskólum með tékkneskum samstarfsaðilum á vegum EEA sjóðsins. Öll þessi verkefni eiga vonandi eftir að efla áhuga og stuðla að þróun kennslu í jarðvísindum á svæðinu.“

Aðrir samstarfsaðilar í verkefninu eru reynsluboltar í verkefnum sem snúa að þróun fræðsluefnis í skólum en þeir eru; Polygonal á Ítalíu, Nefinia í Hollandi, Open Europe á Spáni, Agrupamento de Escolas do Brreiro í Portúgal og Szkola Podstawowa im. Batalionow Chlopskich w Jaslikowie í Póllandi.

Eins og fram hefur komið voru 14 samstarfsverkefni valin af 24 umsóknum sem bárust Landskrifstofu Erasmus+ fyrr á árinu. Þau marka tímamót því þetta eru fyrstu samstarfsverkefni nýs tímabils í Erasmus+ og endurspegla áherslur þess vel.

Verkefnin koma frá öllum skólastigum og vettvangi æskulýðsmála. Meðal annars er um að ræða svokölluð smærri verkefni, en þau eru ný af nálinni og er ætlað að auðvelda aðgengi að Evrópusamstarfi fyrir þær stofnanir og samtök sem vilja taka þátt í Erasmus+ á einfaldaðan hátt. Fjórar umsóknir á sviði leik-, grunn- og framhaldsskóla hlutu styrk í þetta skiptið, sex á sviði starfsmenntunar, ein á sviði háskóla, ein á sviði fullorðinsfræðslu og tvær á sviði æskulýðsmála. Þær hlutu alls rúmlega 3 milljónir evra.

Í Erasmus+ er lögð mikil áhersla á fjögur forgangsatriði: inngildingu, sjálfbærni, stafræna færni og virka þátttöku. Nýju samstarfsverkefnin hafa forgangsatriðin að leiðarljósi og leitast við að finna nýjar leiðir og verkfæri á þessum sviðum.

Daníel Einarsson er verkefnastjóri Reykjanes jarðvangs og veitir frekari upplýsingar um verkefnið daniel@reykjanesgeopark.is

Útdrátt um verkefnið á ensku er hægt að nálgast hér.