Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Afbygging stóriðjunnar í Helguvík - Libia Castro & Ólafur Ólafsson

27.-28. apríl
Listamannateymið Libia Castro & Ólafur Ólafsson opna sýninguna, Afbygging stóriðjunnar í Helguvík, laugardaginn 24. febrúar 2024.
 
Listasafn Reykjanesbæjar býður öll velkomin á sýninguna, Afbygging stóriðjunnar í Helguvík, sem er verk í vinnslu og unnið í samstarfi og samtali Libiu & Ólafs við Töfrateymið, Andstæðinga stóriðjunnar í Helguvík, aðra umhverfisverndarsinna, hagfræðing, íbúa Reykjanesbæjar og nærsamfélaga og sýningarstjórann Jonatan Habib Engqvist.
 
 
Þó ekki sé um formlega opnun að ræða þann 24. febrúar, verða léttar veitingar í boði.
Opnunarhóf verður síðan haldið laugardaginn 9. mars kl. 14:00.
 
 
Afbygging stóriðjunnar í Helguvík er verk í vinnslu, við mælum með því að fólk komi oftar en einu sinni á sýningartímanum og taki þátt í samtalinu.
 
Sýningin er styrkt af Safnasjóði. Listamennirnir eru styrktir af Myndlistarsjóði og Myndstef.
 
Afbygging stóriðjunnar í Helguvík stendur til sunnudagsins 28. apríl 2024.
 
 
Libia Castro & Ólafur Ólafsson hófu samstarf sitt í Hollandi árið 1997. Þau vinna þverfagleg samvinnuverkefni; með vídeó, ljósmyndun, hljóðskúlptúr og margmiðlunar innsetningar. Libia & Ólafur fóru fyrir hönd Íslands á Feneyjartvíæringinn árið 2011. Þau hafa sýnt verk sín í almannarýmum í ólíkum borgum víða um Evrópu og haldið einkasýningar um heim allan.
 
 
Jonatan Habib Engqvist er alþjóðlegur sýningarstjóri og höfundur. Frá 2021 hefur hann starfað sem ritstjóri Ord&Bild.
 
 

GPS punktar

N64° 0' 28.637" W22° 33' 26.579"

Staðsetning

Duusgata 2-8, Keflavík, Iceland

Sími