Áfangastaðastjórnun
Gerð og eftirfylgni Áfangastaðaáætlunar Reykjaness
Markaðsstofa Reykjaness er markaðs- og áfangastaðastofa Reykjaness. Hún starfar í umboði sveitarfélaganna á svæðinu og er samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkis og ferðaþjónustunnar.
Að leiða og samhæfa þróun og markaðssetningu Reykjaness sem áfangastaðar í samstarfi við sveitarfélög, atvinnulíf og aðra hagaðila – þannig að ferðaþjónustan þróist í takt við vilja heimamanna, með sjálfbærni að leiðarljósi.
Áfangastaðaáætlun Reykjaness setur rammann utan um þá vinnu. Hún er í sífelldri endurskoðun og verkefnaáætlun hennar er uppfærð árlega.
Hlutverk áfangastaðastofunnar er meðal annars:
Gerð og eftirfylgni Áfangastaðaáætlunar Reykjaness
Kynning á Reykjanesi sem áfangastað innanlands og erlendis
Stuðningur við nýjar vörur, þjónustu og upplifanir
Innlend og alþjóðleg samstarfsverkefni
Söfnun og miðlun upplýsinga um ferðaþjónustu á svæðinu
Stuðningur við fyrirtæki og sveitarfélög
Þuríður H. Aradóttir Braun
Forstöðumaður
thura@visitreykjanes.is
Hildigunnur M. Kristinsdóttir
Miðlar og markaðssetning
hildigunnur@visitreykjanes.is
Daníel Einarsson
Umhverfismál, fræðsla og áningarstaðir
daniel@reykjanesgeopark.is
Ljósmyndarar og efnisgerð: Þráinn Kolbeinsson og Ingibergur Þór Jónasson
Stjórn Markaðsstofu Reykjaness →
Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Reykjaness eru virkir þátttakendur í þróun og markaðssetningu Reykjaness. Með þátttöku verður fyrirtækið þitt hluti af samstarfsneti þeirra sem vinna að því að skapa sterkan og sjálfbæran áfangastað.
Markaðsstofa Reykjaness
Skógarbraut 945, 262 Reykjanesbær
Sími: 420 3288
Netföng: markadsstofa@visitreykjanes.is / info@visitreykjanes.is