Áfangastaður
e. destination
Svæði sem gestir sækja heim og upplifa sem eina heild – hér Reykjanes og sveitarfélögin fjögur.
Áfangastaðastjórnun hefur sitt eigið tungumál. Hér eru helstu hugtökin sem koma fyrir í áfangastaðaáætlun og umræðu um þróun ferðaþjónustu – útskýrð á einföldu máli og tengd við starfið á Reykjanesi.
e. destination
Svæði sem gestir sækja heim og upplifa sem eina heild – hér Reykjanes og sveitarfélögin fjögur.
e. destination management plan
Áætlun um áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála á tilteknu svæði og skilgreindu tímabili. Hún skilgreinir hlutverk hagaðila og setur fram aðgerðir um þróun áningarstaða og vöruþróun.
e. destination management
Samhæfð vinna við að þróa, stýra og markaðssetja áfangastað þannig að þarfir gesta, atvinnulífs, samfélags og umhverfis fari saman.
e. DMO
Samstarfsvettvangur sveitarfélaga, ríkis og atvinnugreinarinnar sem leiðir þróun og markaðssetningu áfangastaðar í landshlutanum. Á Reykjanesi gegnir Markaðsstofa Reykjaness þessu hlutverki.
e. stakeholders
Allir sem eiga hagsmuna að gæta í þróun áfangastaðarins: fyrirtæki, sveitarfélög, stofnanir, landeigendur, íbúar og gestir.
e. visitor site
Staður þar sem gestir stoppa til að njóta náttúru, menningar eða þjónustu, oft með bílastæði, stígum og upplýsingaskiltum.
e. infrastructure
Aðstaða og þjónusta sem gerir gestum kleift að heimsækja svæðið á öruggan hátt, til dæmis vegir, bílastæði, stígar, salerni og merkingar.
e. carrying capacity
Hversu mikið álag svæði, samfélag eða innviðir þola áður en upplifun, náttúra eða lífsgæði íbúa skerðast.
e. visitor management
Aðgerðir sem dreifa umferð gesta í tíma og rúmi til að vernda viðkvæm svæði og bæta upplifun.
e. sustainable tourism
Ferðaþjónusta sem tekur fullt tillit til núverandi og framtíðar efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra áhrifa sinna.
e. regenerative tourism
Ferðaþjónusta sem gengur lengra en að draga úr neikvæðum áhrifum og leitast við að skila staðnum, samfélaginu og náttúrunni betri en áður.
e. slow tourism
Ferðamennska þar sem gestir dvelja lengur, ferðast hægar og tengjast staðnum, fólkinu og náttúrunni betur.
e. UNESCO Global Geopark
Svæði með jarðminjar á heimsmælikvarða sem nýtir þær til verndar, fræðslu og sjálfbærrar þróunar. Reykjanesskaginn allur er Reykjanes UNESCO Global Geopark.
e. geosite
Staður innan jarðvangs sem hefur sérstakt jarðfræðilegt gildi.
e. product development
Þróun nýrrar eða bættrar þjónustu, upplifunar eða afþreyingar fyrir gesti.
e. seasonality
Breytileiki í fjölda gesta eftir árstíðum. Markmið áfangastaðaáætlunar er meðal annars að jafna hana.
e. overnight stays & arrivals
Gistinætur eru fjöldi nótta sem gestir dvelja á gististöðum; gestakomur eru fjöldi gesta sem koma á gististaði.
e. familiarisation trip
Kynnisferð fyrir ferðaskipuleggjendur og söluaðila til að kynnast áfangastaðnum af eigin raun.
Árlegur viðskiptavettvangur markaðsstofa landshlutanna þar sem fyrirtæki á landsbyggðinni kynna sig fyrir ferðaþjónustuaðilum.
Opinber sjóður sem styrkir uppbyggingu, viðhald og verndun ferðamannastaða.
Langtímaáætlun stjórnvalda um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Vantar hugtak? Sendu okkur ábendingu á info@visitreykjanes.is og við bætum því við.