Fara í efni
  %
Erlendra ferðamanna heimsækja Reykjanes – hæst sumarið 2022
  %
Erlendra ferðamanna gista að minnsta kosti eina nótt (2022)
  þúsund
Gistinætur á skráðum gististöðum (2023)
  nætur
Meðaldvöl gesta á gististöðum (2023)
  %
Launþega á Reykjanesi starfa í ferðaþjónustu (2022)

Framtíðarsýn

„Reykjanesið er gæðaáfangastaður með sjálfbærni og gæðaferðaþjónustu að leiðarljósi. Hér er ferðaþjónustan rekin, þróuð og byggð upp í sátt við umhverfi og samfélag.“

Á Reykjanesi er gott að búa og íbúar eru gestrisnir. Ferðaþjónustan skapar jákvæð hagræn áhrif sem endurspeglast í fjölbreyttri og spennandi þjónustu fyrir íbúa og gesti svæðisins.

Lesa meira um framtíðarsýn og markmið →

Hvað er áfangastaðaáætlun?

Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027 er sameiginleg stefna svæðisins um þróun ferðamála í sátt við náttúru og samfélag. Hún er unnin af Markaðsstofu Reykjaness í samstarfi við sveitarfélögin fjögur, Reykjanes Geopark og hagaðila á svæðinu.

01

Tilgangur

Að móta sameiginlega sýn og samræmdar áherslur um stýringu, skipulag og uppbyggingu ferðaþjónustu – og gefa íbúum tækifæri til að móta hvernig ferðaþjónustu þeir vilja.

02

Markmið

Að gestir ferðist víðar, dvelji lengur og skilji eftir tekjur á svæðinu, að náttúran sé vernduð og að samfélagið njóti ávinnings af ferðaþjónustunni.

03

Lifandi skjal

Áætlunin er í sífelldri endurskoðun. Aðgerðaáætlun hennar og forgangsverkefni áningarstaða eru uppfærð árlega.

Kynntu þér áætlunina → Sækja PDF

Uppbyggingarverkefni á Reykjanesi

Fyrirsagnir frétta

  • Fagradalsfjall. Ljósmynd: Þráinn Kolbeinsson

    Áfangastaðaáætlun Reykjaness komin á eigin vef

    Markaðsstofa Reykjaness hefur opnað nýtt vefsvæði fyrir Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027. Þar er á einum stað að finna áætlunina sjálfa, áherslur og aðgerðir, uppbyggingarverkefni á svæðinu og fróðleik um þróun ferðaþjónustu á Reykjanesi.
  • Safnahelgi á Suðurnesjum 17.–18. október

    Safnahelgi á Suðurnesjum fer fram dagana 17.–18. október með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt er inn á öll söfn og viðburði sem taka þátt og því tilvalið að skipuleggja rúnt um Reykjanes og kynnast menningu og sögu svæðisins.
  • Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar: Hvernig höldum við í gott fólk?

    Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.
  • Almyrkvaverkefninu formlega lokið

    Fulltrúar þeirra fjölmörgu aðila sem komu að undirbúningi og framkvæmd almyrkvans 12. ágúst komu saman í forsætisráðuneytinu á dögunum. Þar var litið yfir farinn veg og farið yfir helsta lærdóm verkefnisins. Þuríður H. Aradóttir Braun frá Markaðssto…