Reykjanes UNESCO Global Geopark
Reykjanesskaginn myndar Reykjanes UNESCO Global Geopark, með viðurkenningu frá UNESCO, Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna. Jarðvangurinn nær yfir sveitarfélögin fjögur: Grindavíkurbæ, Reykjanesbæ, Suðurnesjabæ og Sveitarfélagið Voga.
Hér er eini staðurinn í heiminum þar sem gestir geta séð hvar Mið-Atlantshafshryggurinn kemur á land og upplifað á afmörkuðu svæði hvaða áhrif flekaskil hafa á náttúru og samfélag.
Sérstaða svæðisins
Á Reykjanesi hafa mæst kraftar náttúru og samfélags og skapað það umhverfi sem við lifum við í dag. Menning og saga svæðisins er samofin landslaginu og framtíð atvinnulífs og samfélags mótast af samspili við náttúruna.
Jarðvangur og ferðaþjónusta
Jarðvangurinn er hornsteinn í sérstöðu Reykjaness sem áfangastaðar. Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Reykjaness geta einnig gerst Geopark-fyrirtæki og tekið þannig þátt í að miðla sögu og sérstöðu svæðisins.
- Reykjanes UNESCO Global Geopark á Visit Reykjanes →
- Jarðminjastaðir og áhugaverð svæði →
- reykjanesgeopark.is →
Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.