Gjaldskrá og skráning
Gerast samstarfsfyrirtæki
Samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Reykjaness eru fyrirtæki með tilskilin rekstrarleyfi sem vilja vinna saman að öflugri framtíð ferðaþjónustu á Reykjanesi. Skráningin fer fram í þremur einföldum skrefum.
Ertu að velta fyrir þér hvað felst í samstarfinu? Hvað fæ ég út úr því að vera með? →
1. Skoðaðu gjaldskrána
Árgjald samstarfsfyrirtækja fer eftir veltu. Þegar fyrirtæki gengur til liðs við samstarfið er valinn sá flokkur sem samræmist veltu þess.
| Flokkur | Velta | Aðildargjald* | Aukaskráning 1 | Aukaskráning 2 |
|---|---|---|---|---|
| Flokkur 1 | Velta að 30 milljónum | 40.000 kr. | 10.000 kr. | 5.000 kr. |
| Flokkur 2 | Velta 30–80 milljónir á ári | 60.000 kr. | 20.000 kr. | 10.000 kr. |
| Flokkur 3 | Velta 80–150 milljónir á ári | 90.000 kr. | 30.000 kr. | 15.000 kr. |
| Flokkur 4 | Velta 150–500 milljónir á ári | 120.000 kr. | 40.000 kr. | 20.000 kr. |
| Flokkur 5 | Velta yfir 500 milljónir á ári | 150.000 kr. | 50.000 kr. | 25.000 kr. |
* Aðildargjald fyrir árið 2025, fyrir eina starfsstöð (sama heimilisfang). Aukaskráning 1 gildir fyrir aðra starfsstöð eða listun, aukaskráning 2 fyrir þriðju og fleiri.
Aðildargjald eða aukaskráning? Ef fyrirtækið rekur t.d. hótel og veitingastað má skrá hótelið sem meginskráningu og veitingastaðinn sem aukaskráningu. Þannig verða báðar þjónustueiningarnar sýnilegar í markaðsefni. Samstarfsfyrirtækjum gefst einnig kostur á að gerast Geopark-fyrirtæki.
2. Skráðu fyrirtækið
Fylltu út stutt skráningarform með nafni og kennitölu fyrirtækis og upplýsingum um tengilið.
3. Við höfum samband
Við förum yfir skráninguna og upplýsingar fyrirtækisins og ræðum hvernig það getur tengst starfinu.
Spurningar?
Hafðu samband í síma 420 3288 eða sendu póst á info@visitreykjanes.is.