Fara í efni

Hvað get ég gert?

Áfangastaðurinn Reykjanes er byggður upp í sameiningu. Hér eru leiðir til að taka þátt.

Fyrirtæki í ferðaþjónustu

  • Gerast samstarfsfyrirtæki Markaðsstofu Reykjaness og taka þátt í mótun og markaðssetningu áfangastaðarins.
  • Nýta skilaboð og ásýnd vörumerkisins Reykjanes í eigin markaðsefni.
  • Gerast Geopark-fyrirtæki og miðla sögu og sérstöðu jarðvangsins.
  • Sækja fræðslu, til dæmis Menntamorgna ferðaþjónustunnar, og taka þátt í þróunarverkefnum.
  • Þróa vörur sem lengja dvöl gesta og dreifa þeim um svæðið og árið.
  • Huga að sjálfbærni í rekstri: orkunotkun, úrgangi, innkaupum úr heimabyggð og góðu aðgengi.

Sveitarfélög og stofnanir

  • Vinna að uppbyggingu áningarstaða í samræmi við forgangsverkefni áfangastaðaáætlunar og sækja um í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.
  • Nýta handbækur og leiðbeiningar um uppbyggingu og merkingar.
  • Tengja skipulag, menningar- og atvinnustefnu við áherslur áætlunarinnar.
  • Deila gögnum og taka þátt í samstarfshópi um uppbyggingu ferðamannastaða.

Íbúar

  • Taka þátt í samráði þegar áætlunin er endurskoðuð og segja hvernig ferðaþjónustu þið viljið.
  • Vera gestgjafar – gestrisni er einkennismerki Reykjaness.
  • Kynnast eigin heimabyggð og segja öðrum frá.

Hafðu samband við Markaðsstofu Reykjaness á info@visitreykjanes.is eða í síma 420 3288.

← Allur fróðleikur