Fara í efni

Saman byggjum við upp vörumerkið Reykjanes

Fyrirtæki, stofnanir, stoðkerfið, sveitarfélög og samfélagið byggja saman upp öflugt og traust vörumerki: Reykjanes. Reykjanesið er einstakt á heimsvísu – gæðaáfangastaður sem stuðlar að sjálfbærni og er áhugaverður að sækja heim.

Reykjanesið er lífæð landsins þar sem ægifegúrð fylgir þér hvert fótmál.

Skilaboðin

  • Reykjanesið er einstakt á heimsvísu.
  • Reykjanesið er UNESCO Global Geopark.
  • Reykjanesið er söguarfur, land umbreytinganna – tveir heimar sem togast á.
  • Reykjanesið er staður þar sem einveran er möguleg án mikillar fyrirhafnar. Kraftur býr í náttúruundrum sem gestir hafa aldrei upplifað áður.
  • Reykjanesið er heillandi, kraftmikið, ægifagurt og aðgengilegt.

Ásýnd

Áferð mynda, hönnun og útlit endurspegla og fanga auðkenni Reykjaness en sveipa það á sama tíma ákveðinni dulúð. Ásýndin á að skera sig úr yfirunnum landslagsmyndum þar sem litir eru ýktir og efnistökin dæmigerð.

Fullkomið er fallegt, en ófullkomið er forvitnilegt.

Notaðu vörumerkið

Samstarfsfyrirtæki hafa aðgang að markaðs- og kynningarefni fyrir svæðið. Hafðu samband við Markaðsstofuna á info@visitreykjanes.is til að fá myndefni og leiðbeiningar.

Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.