Atvinnulífið
Fleiri tækifæri til vöruþróunar og vaxtar, verðmæt atvinnutækifæri og aukin gæði í þjónustu. Fjárhagslegur stöðugleiki leikur lykilhlutverk í sjálfbærni áfangastaðarins.
Reykjanesið er gæðaáfangastaður með sjálfbærni og gæðaferðaþjónustu að leiðarljósi. Hér er ferðaþjónustan rekin, þróuð og byggð upp í sátt við umhverfi og samfélag.
Á Reykjanesi er gott að búa og íbúar eru gestrisnir. Ferðaþjónustan skapar jákvæð hagræn áhrif sem endurspeglast í fjölbreyttri og spennandi þjónustu fyrir íbúa og gesti svæðisins. Svæðið veitir gestum innblástur og jákvæð hughrif sem endurspeglast í aukinni þekkingu og vitund um svæðið.
Við viljum byggja upp og þróa sjálfbæran áfangastað sem eykur ábata og lífsgæði í landshlutanum. Í því felst að:
Fleiri tækifæri til vöruþróunar og vaxtar, verðmæt atvinnutækifæri og aukin gæði í þjónustu. Fjárhagslegur stöðugleiki leikur lykilhlutverk í sjálfbærni áfangastaðarins.
Einstök upplifun umfram væntingar. Ánægðir gestir ferðast víðar um Reykjanesið, dvelja lengur og skila tekjum til svæðisins.
Náttúran leikur lykilhlutverk. Saman vinnum við að því að vernda, bæta og stýra áningarstöðum svo við getum notið náttúru og lífríkis svæðisins til framtíðar.
Stolt af áfangastaðnum og býður gesti velkomna. Íbúar styðja við og hafa hag af ferðaþjónustu á svæðinu og gestrisni er okkar einkennismerki.
Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.