Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027: Þróun ferðamála í sátt við náttúru og samfélag. Áætlunin er stefna svæðisins í ferðamálum og verkfæri í framtíðarþróun ferðaþjónustu á Reykjanesi. Út frá henni eru verkefni þróuð og framkvæmd í samstarfi sveitarfélaga, atvinnulífs og annarra hagaðila.

Sækja Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027 (PDF) →

Framtíðarsýn

Reykjanesið er gæðaáfangastaður með sjálfbærni og gæðaferðaþjónustu að leiðarljósi. Hér er ferðaþjónustan rekin, þróuð og byggð upp í sátt við umhverfi og samfélag.

Kynntu þér áætlunina

Hvað er áfangastaðaáætlun?

Áfangastaðaáætlun er áætlun um áherslur, uppbyggingu og þróun ferðamála á tilteknu svæði og skilgreindu tímabili. Markmiðið er að móta sameiginlega sýn og samræmdar áherslur um stýringu, skipulag og stefnu í þróun ferðamála og uppbyggingu innviða.

Áfangastaðaáætlun Reykjaness er unnin samkvæmt stefnu stjórnvalda um þróun ferðamála á landsvísu. Markaðsstofa Reykjaness vinnur áætlunina í samstarfi við Reykjanes Geopark og hagaðila á svæðinu, en Ferðamálastofa heldur utan um framvindu áfangastaðaáætlana á landsvísu.

Áætlunin nær yfir sveitarfélögin fjögur á Suðurnesjum: Reykjanesbæ, Grindavíkurbæ, Suðurnesjabæ og Sveitarfélagið Voga. Hún er lifandi skjal og verkefni hennar eru endurskoðuð reglulega með tilliti til forsendna og breytinga í umhverfi ferðaþjónustu og stjórnsýslu svæðisins.

Skjöl og gögn

Eldri áætlanir: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2022–2023 – forsendur (PDF)

Sjá uppbyggingu áningarstaða → · Sjá þróunarverkefni →