Móttaka skemmtiferðaskipa
Skemmtiferða- og leiðangursskip koma í auknum mæli til hafna á Reykjanesi. Vel skipulögð móttaka getur skapað tækifæri til vöruþróunar og virðisauka fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög – í sátt við samfélag og náttúru.
Cruise Ready – handbók fyrir Reykjanes
Markaðsstofa Reykjaness vann handbók um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi í samstarfi við AECO, samtök leiðangursskipa á norðurslóðum. Handbókin er ætluð hagaðilum á svæðinu og var rýnd á vinnustofu með fyrirtækjum, höfnum og sveitarfélögum í Hljómahöll í mars 2024.
Sækja Cruise Ready-handbókina (PDF, á ensku) →
Fyrir hverja?
- Ferðaþjónustufyrirtæki sem vilja þjónusta farþega skemmtiferðaskipa
- Hafnir og sveitarfélög sem taka á móti skipum
- Söfn, verslanir, veitingastaðir og aðrir sem gestir heimsækja í landlegu