Fara í efni

Sjálfbær og nærandi ferðaþjónusta

Framtíðarsýn Reykjaness er að vera gæðaáfangastaður með sjálfbærni að leiðarljósi, þar sem ferðaþjónustan er rekin, þróuð og byggð upp í sátt við umhverfi og samfélag.

Sjálfbær ferðaþjónusta

Sjálfbær ferðaþjónusta tekur tillit til efnahagslegra, félagslegra og umhverfislegra áhrifa sinna, nú og til framtíðar. Í áfangastaðaáætlun Reykjaness hvílir sjálfbærnin á fjórum stoðum: atvinnulífinu, gestinum, umhverfinu og samfélaginu. Sjá framtíðarsýn og markmið →

Nærandi ferðaþjónusta

Nærandi ferðaþjónusta (e. regenerative tourism) gengur skrefinu lengra. Markmiðið er ekki aðeins að draga úr neikvæðum áhrifum heldur að skila jákvæðum áhrifum til þeirra staða sem heimsóttir eru – með því að styrkja tengsl við náttúruvernd, menningararf, samfélagsþróun og staðbundið atvinnulíf.

Verkefni á Reykjanesi

REGENERATE

Alþjóðlegt samstarfsverkefni um nærandi ferðaþjónustu fyrir náttúru, samfélög og sjálfbæra framtíð

Nánar →

Hagnýt skref fyrir fyrirtæki

  • Kaupa vörur og þjónustu úr heimabyggð.
  • Draga úr orkunotkun, sóun og úrgangi.
  • Miðla upplýsingum um ábyrga hegðun í náttúrunni og öryggi.
  • Bjóða upplifanir sem dreifa gestum um svæðið og árið.
  • Taka þátt í samstarfi og þekkingarmiðlun innan svæðisins.

← Allur fróðleikur