Einstök jarðfræði á heimsvísu
Brúin milli heimsálfa, hvassasta og yngsta hraun Íslands og öfgarnar í orku náttúrunnar – brimið, rokið, jarðvarminn og jarðfræðin. Gesturinn finnur áþreifanlega fyrir þessum öfgum á ferð sinni um Reykjanesið.
Reykjanesið býr yfir fjölbreyttu úrvali áningarstaða og aðdráttarafls. Víða er gott aðgengi og svæðið býr yfir tækifærum í nálægð við alþjóðaflugvöll og höfuðborgarsvæðið. Innan svæðisins er fjölbreytt úrval gæðaþjónustu og afþreyingar.
Brúin milli heimsálfa, hvassasta og yngsta hraun Íslands og öfgarnar í orku náttúrunnar – brimið, rokið, jarðvarminn og jarðfræðin. Gesturinn finnur áþreifanlega fyrir þessum öfgum á ferð sinni um Reykjanesið.
Eldsumbrot og náttúruperlur sýna þá krafta sem búa í jörðinni sem bókstaflega er að rifna í sundur fyrir framan gestinn.
Sagan um sjóskaða, líflegar hafnir og fjöldi vita segja frá baráttu heimamanna við hafið.
Aðgengi að ferðamönnum er hvergi betra en hér.
Góður kostur fyrir þá sem koma einna helst til að upplifa borgina en vilja skreppa út fyrir hana og upplifa náttúru sem þeir sjá hvergi annars staðar.
Víðáttan og minni umferð ferðamanna en við aðrar náttúruperlur gera það að verkum að gestir upplifa frekar þögnina, einveruna og tengingu við náttúruna.
Stuttar vegalengdir milli áfangastaða henta fjölskyldum með börn vel.
Eldgosasvæðin, Bláa lónið, Reykjanes UNESCO Global Geopark og áningarstaðir innan hans eru einstakir á heimsvísu. Fleiri áhugaverðir staðir fylla auðveldlega upp í góðar minningar yfir daginn.
Skoða afþreyingu á Visit Reykjanes →
Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.