Fara í efni

Upplifun ferðamanna á Reykjanesi

Samkvæmt markaðsgreiningu þekkja ferðamenn almennt ekki svæðið áður en þeir koma. Þegar þeir eru komnir verða þeir hins vegar fyrir vonbrigðum að hafa ekki vitað af því fyrr og hefðu viljað eyða meiri tíma á Reykjanesinu.

  • Reykjanes er ungt og enn ekki þekkt vörumerki sem áfangastaður.
  • Eldsumbrotin hafa haft mikil áhrif á markaðssetningu og ferðahegðun gesta. Eldgosasvæðin eru nýr áfangastaður sem laðar að sér gesti og veitir innblástur til lengri dvalar.
  • Brúin milli heimsálfa er þekkt meðal gesta og þeir tengja Bláa lónið í auknum mæli við Reykjanesið.

Markhópar

Lífsglaði heimsborgarinn

  • Stærsti hópur ferðamanna sem kemur til landsins.
  • Tilbúinn að greiða fyrir þjónustu og upplifun og skilur eftir sig tekjur.
  • Deilir upplifun sinni og segir öðrum frá.
  • Veitingastaðir, auðvelt aðgengi að náttúruperlum og nálægðin við höfuðborgina höfða til hans.

Sjálfstæði landkönnuðurinn

  • Afþreying og náttúra Reykjanessins höfða til hans.
  • Lítill fjöldi annarra ferðamanna og ómenguð náttúra heilla hann.
  • Vill ganga um svæðið og hefur áhuga á að fræðast.
  • Skilur minna eftir sig og kaupir síður þjónustu.

Lykiltölur

Gistinætur, atvinnutekjur og fyrirtækjaflóra svæðisins eru teknar saman í stöðugreiningu ferðaþjónustunnar.

Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.