Fara í efni

Reykjanesið er einstakt á heimsvísu

Reykjanesskaginn myndar Reykjanes UNESCO Global Geopark. Hér er eini staðurinn í heiminum þar sem gestir geta séð hvar Mið-Atlantshafshryggurinn kemur á land og upplifað á afmörkuðu svæði hvaða áhrif flekaskil Norður-Ameríku- og Evrasíuflekans hafa á náttúru og samfélag.

Með þetta að leiðarljósi er Reykjanesið gæðaáfangastaður með sjálfbærni í forgrunni. Hér er ferðaþjónustan rekin, þróuð og byggð upp í sátt við umhverfi og samfélag.

Reykjanes í hnotskurn

Á Reykjanesi sameinast kraftur náttúru, mannauðs og atvinnulífs. Reykjanes er lífæð landsins og sjálfbær landshluti þar sem búseta er eftirsótt sökum traustra innviða, góðrar þjónustu og lifandi menningarstarfs í fjölþjóðlegu samfélagi.

  • 30.930 íbúar
  • 4 sveitarfélög: Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Vogar
  • Alþjóðaflugvöllur landsins og nálægð við höfuðborgarsvæðið

Kynntu þér Reykjanes

Ferðaþjónustan í tölum – sjá stöðugreiningu →

Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.