Vegalengd
Um 700 km aðra leið eða um 1.200 km báðar leiðir
Eldfjallaleiðin er ferðaleið um Reykjanes og Suðurland með áherslu á eldfjöll og umhverfi þeirra. Átta eldfjöll vísa leiðina í gegnum söguna af því hvernig þau hafa haft áhrif á land og þjóð.
Áhersla: Verðmætasköpun og vöruþróun · Innlent verkefni í samstarfi við Markaðsstofu Suðurlands
Eldfjallaleiðin er hugsuð fyrir hæglætisferðamennsku: að gestir taki sér góðan tíma, dvelji lengur, ferðist víðar og kynnist náttúru, sögu, mat og fólki á leiðinni. Þannig styður hún við markmið Áfangastaðaáætlunar Reykjaness um dreifingu gesta, lengri dvöl og auðugri upplifun allt árið.
Um 700 km aðra leið eða um 1.200 km báðar leiðir
Að mestu malbikaðir vegir á láglendi
17 bæir og þorp
Hverir, hraun, ný og gömul eldfjöll, svartir sandar, eldfjöll undir jöklum, eldfjallaeyjar, stuðlaberg, mosagrónar hraunbreiður og hraunstrendur
Allt árið
Mælt er með minnst átta dögum, einum fyrir hvert svið leiðarinnar