Ferðamálastefna og aðgerðaáætlun til 2030
Samþykkt á Alþingi í júní 2024. Sjálfbærni og stöðugleiki eru í forgrunni og áfangastaðaáætlanir landshlutanna eru eitt af verkfærum hennar.
Áfangastaðaáætlun Reykjaness stendur ekki ein. Hún er unnin samkvæmt stefnu stjórnvalda um þróun ferðamála og tekur mið af þeim áætlunum og stefnum í umhverfis-, ferða-, menningar- og markaðsmálum sem liggja fyrir hjá sveitarfélögunum og í sameiginlegum verkefnum svæðisins.
Samþykkt á Alþingi í júní 2024. Sjálfbærni og stöðugleiki eru í forgrunni og áfangastaðaáætlanir landshlutanna eru eitt af verkfærum hennar.
Langtímaáætlun um uppbyggingu innviða til verndar náttúru og menningarsögulegum minjum.
Styrkir uppbyggingu, viðhald og verndun ferðamannastaða. Forgangsverkefni áningarstaða í áætluninni eru grunnur umsókna af svæðinu.
Markaðsstofa Reykjaness starfar sem markaðs- og áfangastaðastofa samkvæmt samningi við Ferðamálastofu, þar sem gerð og eftirfylgni áfangastaðaáætlunar er eitt meginverkefna.
Sameiginleg stefna sveitarfélaganna á Suðurnesjum í atvinnu-, nýsköpunar-, umhverfis- og menningarmálum.
Skipulagsáætlanir sveitarfélaganna fjögurra sem marka ramma um landnotkun og uppbyggingu.
Stefna og verkefni jarðvangsins um verndun jarðminja, fræðslu og sjálfbæra ferðaþjónustu.
Áherslur áætlunarinnar styðja við heimsmarkmiðin um sjálfbæra þróun, meðal annars:
Góð atvinna og hagvöxtur
Sjálfbærar borgir og samfélög
Ábyrg neysla og framleiðsla
Aðgerðir í loftslagsmálum
Líf á landi
Samvinna um markmiðin
Tengingin við heimsmarkmiðin er sett fram til leiðbeiningar og verður útfærð nánar við endurskoðun áætlunarinnar.