Fara í efni

Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027 setur fram sex megináherslur. Þær marka þá vinnu og þau verkefni sem Markaðsstofa Reykjaness og samstarfsaðilar vinna að hverju sinni. Aðgerðaáætlun upplifunarstaða er uppfærð árlega.

Umhverfi og uppbygging áningarstaða

Við byggjum upp og þróum áningarstaði á Reykjanesi til að vernda náttúruna, tryggja öryggi og auka jákvæða upplifun gesta. Með uppbyggingu áningarstaða vinnum við að því að dreifa álagi á svæðinu og stuðla að þróun áfangastaðarins í átt að hæglætisferðamennsku. Sjá uppbyggingu áningarstaða →

Verkefni og aðgerðir

Náttúra og umhverfi Reykjanesskagans er einstakt og einn af lykilþáttum í ferðaþjónustu og þróun ferðamála á svæðinu. Vinna þarf að bættu aðgengi og öryggi á völdum áningarstöðum til að tryggja jákvæða upplifun gesta á svæðinu. 

Reykjanes jarðvangur vinnur að umhverfismálum og uppbyggingu áningarstaða á Reykjanesi í samstarfi við sveitarfélögin á svæðinu, landeigendur og aðra hagsmunaaðila innan svæðisins. Landeigendur og sveitarfélög geta t.d. nýtt hönnun og útlit jarðvangsins við skiltagerð og merkingar til að samræma ásýnd staða á svæðinu. 

Tengiliður Reykjanes jarðvangs vegna uppbyggingu áfangastaða: Daníel Einarsson, daniel@reykjanesgeopark.is 

Áfangastaðastofan kemur að eftirfarandi verkefnum tengdum uppbyggingar áformum og umhverfismálum:

  • Framkvæmdalisti uppbyggingar áningarstaða - uppfærður árlega og tengist Áfangastaðaáætlun Reykjaness
  • Ráðgjöf og aðstoð
  • Samstarfshópur um uppbyggingu ferðamannastaða á Reykjanesi sem fundar reglulega yfir árið.

Útgefið efni

Við uppbyggingu og þróun áfangastaða á svæðinu er hægt að nýta útgefið efni:

Möguleg fjármögnun fyrir uppbyggingu ferðamannastaða á Reykjanesi

 

Framkvæmdasjóður ferðamannastaða: https://www.ferdamalastofa.is/is/studningur/framkvaemdasjodur-ferdamannastada/upplysingasida-um-umsoknir

Sjá uppbyggingu áningarstaða og forgangsverkefni 2024–2027 →

Verðmætasköpun og vöruþróun

Við gerum Reykjanesið að áhugaverðum áfangastað með því að móta umhverfi ferðaþjónustunnar þannig að tækifæri til verðmætasköpunar og vöruþróunar aukist, meðal annars í gegnum samstarfsverkefni.

Verkefni og aðgerðir

Mikilvægt er að tryggja fjölbreytt vöruframboð í ferðaþjónustu á svæðinu og skapa tækifæri til vöruþróunar og virðisauka fyrir ferðaþjónustuaðila, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu. 

Nokkur samstarfsverkefni hafa verið unnin og eru í gangi innan svæðisins: 

  • Kortlagning ferðaþjónustu á svæðinu - gagnagrunnur ferðaþjónustunnar
  • Geopark-fyrirtæki
  • Skemmtiferðaskip á Reykjanesi
  • Matarkista Reykjaness
  • Ferðaleiðir
  • Funda- og ráðstefnuaðstaða á Reykjanesi

Verkefnum lokið:

  • Vestnorden 2021 á Reykjanesi

Tengd þróunarverkefni: REGENERATE, ReThink, Green Footprint, Ráðstefnuaðstaða og fundarsalir, Útilistaverk og arkitektúr, Skemmtiferðaskip á Reykjanesi, Eldfjallaleiðin.

Mannauður, fræðsla og þekking

Fólkið okkar er lykillinn að velgengni og frekari uppbyggingu ferðaþjónustu á Reykjanesi. Saman aukum við þekkingu og fræðslu og þar með gæði þjónustunnar.

Verkefni og aðgerðir

Eitt af markmiðum Áfangastaðaáætlunar Reykjaness er að auka gæði og stuðla að góðri upplifun gesta á áfangastaðnum. Einn af áhrifaþáttum í því verkefni er þjálfun og þekking, stjórnenda og starfsmanna ferðaþjónustufyrirtækja á svæðinu til að takast á við dagleg viðfangsefni í þjónustu við gesti. 

Nokkur verkefni stofunnar snerta á þessu viðfangsefni: 

Tengd þróunarverkefni: Fræðsla í ferðaþjónustu, Menntamorgnar, Rare Routes.

Gögn og rannsóknir

Með tölulegum upplýsingum skiljum við umhverfi ferðaþjónustunnar betur og metum árangur verkefna. Við þekkjum markhópana, mælum hagræn áhrif og skiljum hegðun gesta.

Verkefni og aðgerðir

Einn af lykilþáttum í þróun áfangastaðar eru gögn og rannsóknir, þannig er hægt að meta afleiðingar og ávinning verkefna og ekki síst vinna mikilvægum verkefnum framgöngu og koma þeim í réttan farveg. 

Áfangastaðastofan kemur að og vinnur að framgangi nokkurra verkefna sem snúa að þessu áhersluverkefni í Áfangastaðaáætlun Reykjaness:

Sjá stöðugreiningu ferðaþjónustunnar →

Upplýsingamiðlun og öryggi

Við metum öryggi gesta okkar mikils og tryggjum jákvæða upplifun þeirra á ferðalagi um landshlutann.

Verkefni og aðgerðir

Nokkur verkefni áfangastaðastofunnar koma inn á þætti sem snerta upplýsingamiðlun og öryggismál. Lögð er áhersla á að vinna verkefnum framgöngu sem miða að því að auka öryggi gesta svæðisins og miðla upplýsingum sem geta bætt upplifun þeirra á svæðinu. 

Meðal verkefna sem nú er unnið að eru:

  • Nap and go
  • Sérstök upplýsingasíða um eldgosið í Geldingadölum í Fagradalsfjalli - allt um eldgosið.
  • Öryggi á áningarstöðum

Starfsmenn áfangastaðastofunnar koma einnig að:

  • Samstarfshópur um uppbyggingu vegna eldgoss í Geldingadölum

Markaðssetning áfangastaðarins

Fyrirtæki, stofnanir, stoðkerfið, sveitarfélög og samfélagið byggja saman upp öflugt og traust vörumerki: Reykjanes. Reykjanesið er einstakt á heimsvísu, gæðaáfangastaður sem stuðlar að sjálfbærni og er áhugaverður að sækja heim.

Verkefni og aðgerðir

Meginmarkmið er að fá ferðamenn og gestir upplifi Reykjanesið á jákvæðan hátt, ferðast víðar um svæðið, dvelji lengur og skilji eftir tekjur innan landshlutans.

Skilaboðin

  • Reykjanesið er einstakt á heimsvísu
  • Reykjanesið er lífæð landsins, þar sem ægifegurð fylgir þér hvert fótmál.
  • Reykjanesið er söguarfur, land umbreytinganna, tveir heimar sem togast á.
  • Reykjanesið er staður þar sem einveran er möguleg. Án mikillar fyrirhafnar.
  • Það er kraftur sem felst í náttúruundrum sem gestir hafa aldrei upplifað áður.
  • Reykjanesið er heillandi, kraftmikið, ægifagurt og aðgengilegt.
  • Við erum Reykjanes UNESCO Global Geopark

Auglýsing - Upplifðu Reykjanes!

Myndabanki

Ferðatilhögun og margmiðlunarefni - Upplifðu.is 

Sjá vörumerki áfangastaðarins →

Heimild: Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027.