Fara í efni

Skemmtiferða- og leiðangursskip koma í auknum mæli til hafna á Reykjanesi. Markmið verkefnisins er að móttaka skipa skapi tækifæri til vöruþróunar og virðisauka fyrir fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á svæðinu – í sátt við samfélag og náttúru.

Áhersla: Verðmætasköpun og vöruþróun · Innlent verkefni í samstarfi við AECO

Hafnirnar

Tvær hafnir á Reykjanesi taka á móti skemmtiferðaskipum: Reykjaneshafnir og Grindavíkurhöfn. Hafnirnar geta tekið á móti skipum allt að 160–200 metra löngum og taka aðeins við einu skipi í einu – sem gefur ferðalöngum tækifæri til að upplifa svæðið án mannfjölda.

Cruise Ready

Markaðsstofa Reykjaness vann handbók um móttöku skemmtiferðaskipa á Reykjanesi í samstarfi við AECO, samtök leiðangursskipa á norðurslóðum. Handbókin var rýnd á vinnustofu með fyrirtækjum, höfnum og sveitarfélögum í Hljómahöll í mars 2024.

Sækja Cruise Ready-handbókina (PDF, á ensku) →

Nánar

← Öll þróunarverkefni