Fara í efni

Reykjanestá / Reykjanesviti og nágrenni

Uppbyggingarsvæði – heildræn nálgun skipulags, þróunar og uppbyggingar.

Ástæða og áherslur: Fjöldi vinsælla jarðminjastaða og áningarstaða er á svæðinu, s.s. Gunnuhver, Brimketill, Brú milli heimsálfa, Reykjanesviti og Valahnúkur. Á svæðinu er sérstaða Reykjanes Geopark hvað mest áþreifanleg og sýnileg, en flekaskil Evrasíu- og Norður-Ameríkuflekanna ganga á land við Reykjanestá. Svæðið er langt frá allri þjónustu miðað við önnur áherslusvæði jarðvangsins og er í miðjunni á Reykjaneshringnum. Reykjanesviti er friðlýstur, svæðið allt er á náttúruminjaskrá (C-hluta) og verndað skv. 61. gr. laga um náttúruvernd.

Miðnes / Garðskagi / Hvalsnes

Uppbyggingarsvæði – heildræn nálgun skipulags, þróunar og uppbyggingar.

Ástæða og áherslur: Vinsæl og aðgengileg útivistarsvæði með mikla möguleika til uppbyggingar, tilkomumikið fuglalíf og mikilvægar söguminjar. Fjöldi friðlýstra fornminja og húsa ásamt svæðum á náttúruminjaskrá (C-hluta) og svæðum sem eru vernduð skv. 61. gr. laga um náttúruvernd. Nálægð við Keflavíkurflugvöll.

Þorbjörn / Svartsengi / Grindavík

Uppbyggingarsvæði – heildræn nálgun skipulags, þróunar og uppbyggingar.

Ástæða og áherslur: Fjölfarið svæði í nágrenni vinsælasta ferðamannastaðar á Íslandi, Bláa lónsins. Þorbjarnarfell er eitt helsta kennileiti Grindavíkur og gríðarlega vinsælt göngusvæði, og það sama á við um svæðið í heild. Sérstaklega þarf að huga að öryggismálum á svæðinu vegna yfirstandandi jarðhræringa. Svæðið er á náttúruminjaskrá (C-hluta) og að hluta verndað skv. 61. gr. laga um náttúruvernd.

Kleifarvatn / Keilir / hálendi

Uppbyggingarsvæði – heildræn nálgun skipulags, þróunar og uppbyggingar.

Ástæða og áherslur: Sérstaklega viðkvæmt svæði fyrir átroðningi og utanvegaakstri. Þar er að finna marga þekkta og minna þekkta staði á Reykjanesi sem ber að varðveita. Svæðið er friðlýst sem fólkvangur og að hluta verndað skv. 61. gr. laga um náttúruvernd.