Kínverskir áhrifavaldar og fjölmiðlafólk í heimsókn á Reykjanesi
Fimm kínverskir áhrifavaldar og þrír fulltrúar fjölmiðla heimsóttu Reykjanes á dögunum í tengslum við opnun nýrrar flugleiðar Air China milli Peking og Keflavíkur um Kaupmannahöfn. Heimsóknin var hluti af fjögurra daga kynnisferð þar sem hópurinn fékk að kynnast fjölbreyttri upplifun á Íslandi.
Visit Iceland skipulagði ferðina í samstarfi við Air China, Isavia, Markaðsstofu Reykjaness, Höfuðborgarstofu og Markaðsstofu Suðurlands. Meðal fjölmiðla sem áttu fulltrúa í ferðinni voru Huanqiu.com, China Newsweek og The Beijing News.
Frá Brúnni milli heimsálfa í Bláa lónið
Dagskráin á Reykjanesi hófst við Brúna milli heimsálfa, þar sem hópurinn kynntist jarðfræði svæðisins og flekaskilunum sem liggja um Reykjanesskagann.
Því næst var haldið í rannsóknar- og þróunarsetur Bláa lónsins. Þar fengu gestirnir innsýn í rannsóknir og vöruþróun fyrirtækisins og kynntust vísindunum að baki húðvörum þess.
Hópurinn naut þess einnig að fara ofan í Bláa lónið og fékk kynningu á húðvörulínunni. Heimsókn í vínkjallarann og kavíarsmakk voru svo á dagskrá áður en deginum lauk með kvöldverði á veitingastaðnum Lava.
Heimsóknin var gott tækifæri til að kynna Reykjanes fyrir kínverskum áhrifavöldum og fjölmiðlafólki og sýna hvernig náttúra, vísindi og matarupplifun mætast á svæðinu. Við þökkum Bláa lóninu fyrir góðar móttökur og samstarfsaðilum fyrir ánægjulegt samstarf.