Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Að ganga, með eða án leiðsagnar, er sívinsæll ferðamáti og gönguleiðirnar óþrjótandi. 

Kynnisferðir - Reykjavik Excursions
Reykjavik Excursions – Kynnisferðir bjóða upp á daglegar áætlunarferðir inn á hálendið í Landmannalaugar og Þórsmörk, og einnig að Skógum. Hálendisrútan er tilvalin fyrir þá sem að vilja ganga Laugaveginn eða Fimmvörðuhálsinn eða að gera sér glaðan dag á þessum fallegu svæðum sem ekki eru á færi fólksbíla. Tímatöflur má finna á https://www.re.is/is/highland-bus/ Einnig býður Reykjavik Excursions upp á eitt stærsta úrval dagsferða á Íslandi og má þar nefna hinn heimsfræga gullhring, dagsferð um suðurströndina sem og Snæfellsnesið, að ógleymdum sætaferðum til og frá Bláa lóninu og Leifstöð. www.re.is
Your Friend In Reykjavík
Your Friend In Reykjavik býður upp á gönguferðir & ökuleiðsögn í og út frá Reykjavík og og hefur verið starfandi frá árinu 2015.  Matar, Sögu, Huliðsheima og Bjór & Snafsgöngur eru vinsælustu göngurnar en einnig höfum við boðið hópum upp á sérsniðnar göngur eftir þörfum. Þar að auki er mikil aukning í prívat ökuleiðsögn fyrir fjölskyldur & litla hópa. Allt okkar leiðsögufólk hefur klárað leiðsögunám og / eða eru með mikla reynslu í því að fræða og skemmta okkar gestum. Yfir tvö þúsund fimm stjörnu dómar á síðum eins og Tripadvisor geta borið vitni um að við kunnum okkar fag. Við getum tekið að okkur hluta af hópefli, hvataferðum eða skemmtidagskrá fyrir starfsmenn fyrirtækja eða aðra hópa, allar okkar göngur eru í miðbæ Reykjavíkur og því auðveldlega hægt að sníða skemmtilega gönguferð að dagskránni hverju sinni. Frekari upplýsingar má nálgast á yourfriendinreykjavik.com eða með því að senda okkur tölvupóst á info@yourfriendinreykjavik.com  
Basecamp Iceland
Vinsamlegast hafið samband vegna ferða og bókana.
2Go Iceland Travel
2Go Iceland Travel er íslenskt ferðaþjónustufyrirtæki sem sérhæfir sig í einkaferðum, sérsniðnum ferðalögum og ferðum fyrir smærri hópa um Ísland. Frá árinu 2012 höfum við hjálpað ferðamönnum að upplifa Ísland með staðþekkingu, persónulegri þjónustu og sveigjanlegum ferðaáætlunum sem taka mið af áhugasviði, ferðahraða og óskum hvers og eins. Einkaferðir okkar spanna allt frá sígildum leiðum á borð við Gullna hringinn og Suðurströndina til lengri ferða um landið, norðurljósaferða, Snæfellsness og sérsniðinna ferðalaga víðs vegar um Ísland. Í stað þess að fylgja stífri ferðaáætlun gefa einkaferðir okkar gestum svigrúm til að upplifa landið á sínum eigin hraða í fylgd staðkunnugra leiðsögumanna. Reykjanesskagi skipar sérstakan sess hjá okkur. Í teyminu okkar eru leiðsögumenn frá Grindavík og Reykjanesi sem þekkja svæðið af eigin raun – samfélagið, jarðfræðina, landslagið og síbreytilegt umhverfi eldfjallasvæðisins. Frá fyrsta eldgosinu við Fagradalsfjall árið 2021 hafa leiðsögumenn okkar farið með gesti um yngstu eldfjallasvæði Íslands. Undir merkjum Fagradalsfjall Volcano Tours, sem er rekið af 2Go Iceland Travel, bjóðum við upp á leiðsagðar gönguferðir að Fagradalsfjalli, einkaferðir um eldfjallasvæðin og ferðir fyrir smærri hópa um Reykjanesskaga. Leiðsögumenn okkar þekkja gönguleiðirnar og landslagið vel og laga hverja ferð að aðgengi, veðri, aðstæðum á eldfjallasvæðinu og gildandi öryggisleiðbeiningum hverju sinni. Reykjanes hefur þó upp á mun meira að bjóða en eldfjöll. Á svæðinu er að finna eitt áhugaverðasta landslag Íslands og ferðir okkar geta meðal annars tekið gesti um Grindavík, Kleifarvatn, Seltún og fleiri áhugaverða staði á Reykjanesskaga. Þar fléttum við saman stórbrotinni jarðfræði, staðbundnum sögum og innsýn í það sem gerir þennan einstaka hluta Íslands sérstakan. Persónuleg nálgun er kjarninn í starfsemi 2Go Iceland Travel. Við teljum að besta leiðin til að upplifa Ísland felist ekki einfaldlega í því að heimsækja sem flesta staði, heldur að ferðast með fólki sem þekkir landið og getur hjálpað gestum að upplifa það á þeim hraða sem hentar þeim. Hvort sem um er að ræða einkaferð í einn dag, gönguferð að Fagradalsfjalli, fjölskylduferð eða sérsniðið ferðalag um Ísland til nokkurra daga, aðstoðar teymið okkar við að skapa ferð sem tekur mið af þínum óskum.
Discover Grindavík

Aðrir (11)

Troll Expeditions Fiskislóð 45G 101 Reykjavík 5195544
Fjallabak Skólavörðustígur 12 101 Reykjavík 511 3070
Hike Iceland Mánagata 4 105 Reykjavík 833-8383
Hikers of Iceland Úthlíð 5 105 Reykjavík 767-2375
Iceland Untouched Meistaravellir 11 107 Reykjavík 416-3100
Grænar ferðir Álfabakki 12 109 Reykjavík 864-1336
Perfect Iceland Norðurvellir 6 230 Reykjanesbær 821-6569
Fjallafjör / Selfoss Adventures Ásvellir 1 240 Grindavík 6976699
Útiverur Eikarskógar 9 300 Akranes 858-5162
EV Travel Móstekkur 75 800 Selfoss 773-4564
Þín leið 899-8588