Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Ódýrasta gisting sem völ er á.

Fjölmörg tjaldstæði eru um allt land, flest opin frá maí og fram í september.

Tjaldsvæðið Vogum
Tjaldsvæðið í Vogum er á gróinni grasflöt þar sem áður var knattspyrnuvöllur sveitarfélagsins við hlið Íþróttamiðstöðvar Voga. Aðstöðuhús fylgir svæðinu, þar sem er aðgangur að salerni, sturtu, uppþvottaaðstöðu og góðu eldhúsi. Þá er einnig gott aðgengi að rafmagnstenglum. Tjaldsvæðið er opið allt árið. Hægt að leigja herbergi fyrir svefnpokapláss.  Allar nánari upplýsingar um verð og opnunartímar má finna hér .
Lava Hostel
Lava Hostel er staðsett í skátaheimili Hraunbúa í Hafnarfirði í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Lava Hostel býður upp á gistingu á góðu verði í fallegu umhverfi Víðistaðatúns þar sem tveir heimar mætast, álfheimar og borgarlífið. Herbergin eru frá tveggja manna og upp í átta manna auk svefnpokaplássa í sal fyrir stærri hópa. Gestir hafa aðgang að þráðlausu Interneti, þvottaaðstöðu, vel útbúnu eldhúsi og borðstofu. Í húsinu er huggulegur veislusalur sem leigður er út fyrir viðburði. Öll nauðsynleg þjónusta er á næsta leiti og náttúran handan við hornið. Ef þú ert að leita að fjölskylduvænu tjaldsvæði nálægt Reykjavík þá er tjaldsvæðið í Hafnarfirði rétti staðurinn. Hafnarfjörður er þriðji stærsti bær Íslands með um 30.000 íbúa. Bærinn er oft kallaður bærinn í hrauninu enda er hraun allsráðandi. Einnig er Hafnarfjörður með marga íbúa huldufólks. Keyrt er inn á Víðistaðatún eftir gangstíg við hlið Lava Hostel/ skátaheimilisins. Tjaldsvæðið er opið frá 15 Maí til 15 September.  Tjaldsvæði Hafnarfjarðar er á Víðstaðatúni sem er fallegur listaverkagarður umkringdur hrauni. Rólegt, hlýlegt og fjölskylduvænt umhverfi með nægu plássi fyrir börnin til að leika sér. Stutt í alla þjónustu og miðbæ Hafnarfjarðar. Heitt og kalt vatn, sturtur, þvottavél, Wi-Fi og salerni við tjaldsvæðið. Einnig eru þar útivaskar til uppvasks og rafmagn á svæðinu. Tjaldsvæðið er rekið af skátafélaginu Hraunbúum og rennur ágóði þess í uppbyggingu á skátastarfinu. Aðilar undir 18 ára aldri þurfa að vera í fylgd með forráðamanni. Allir bílar þurfa að vera lagðir upp á bílastæði, ef þið eruð ekki að sofa í þeim. Aðeins einn húsbíll eða vagn í hvert stæði. Við bjóðum ekki upp á langtímastæði, hámarksdvöl eru 7 dagar í einu. Það er hægt að nota rafmagn á svæði C með langri snúru, tenglanir eru hinum megin við aksturveginn á svæði B. Öryggismyndavélar vakta innganginn á tjaldsvæðinu. Hvernig kemst ég inn á tjaldsvæðið? Það er frítt Þráðlaust net hjá hliðinu. 1) Bókaðu stæði í gegnum Parka. (smelltu á "Bóka Núna") 2) Hliðið er með bílnúmera skanna og á að opnast sjálfkrafa. Ef það gerist ekki þá skaltu fylgja þessum skrefum: 1) Opnaðu kvittunina sem þú fékkst í gegnum tölvupóstinn.* 2) Smelltu á "skrá mig inn á svæðið" og þaðan getur þú leiðrétt bílnúmerið eða bætt við númer, eftir það á hliðið að geta opnað sjálfkrafa með því að skanna bílnúmerið. 3) Ef það virkar ekki Smelltu þá á "opna hlið". *Þú færð tölvupóst ef bókunin gekk í gegn (gáðu í ruslpóstinn), þú færð 2 tölvupósta. Lava hostel og Tjaldsvæðið á Víðistaðatúni er rekið af Skátafélaginu Hraunbúum í Hafnarfirði.
Garðskagi - tjaldsvæði
Tjaldsvæðið á Garðskaga er hentugt fyrir ferðalanga á húsbílum og aðra sem vilja njóta opinnar náttúru við sjóinn. Það er opið allt árið. Garðskagatá, nyrsti hluti Reykjanesskaga, býður upp á frábæra upplifun fyrir gesti með tveimur vitum, fallegri sandströnd og rómuðum sólsetrum. Vitarnir skapa sérstakt andrúmsloft og veðrið og sjórinn geta verið eftirminnileg, hvort sem það eru morgunstillur eða byljandi stormur með tilheyrandi brimi. Vitarnir á Garðskaga voru byggðir 1897 og 1944. Annar er sá næstelsti á landinu og hinn sá stærsti. Garðskagi is a premium site for bird-watching where whales can also often be observed from the coast. Garðskagi er einstakur áfangastaður í nýjum jarðvangi á Reykjanesskaga, sannkölluð náttúruperla. Stóri vitinn hýsir tvær áhugaverðar sýningar, norðurljósasýningu og hvalasýningu. Frá toppi vitans er stórkostlegt útsýni. Veitingastaðurinn Röstin er staðsett á efri hæð byggðasafnsins á Garðskaga. Þar er hægt að fá góðan mat á sanngjörnu verði allt árið um kring. Útsýnið frá Röstinni er frábært og hægt að njóta sólarlagsins yfir Snæfellsjökil, fjölbreytts fuglalífs og stundum má sjá hvali rétt undan ströndinni. Opnunartími: allt árið Fyrir hópa hafið samband í síma 893-8909 eða með tölvupósti: johann@gardskagi.com. 
Tjaldsvæðið Grindavík
Tjaldstæðið í Grindavík opnaði sumarið 2009. Mjög góð aðstaða fyrir ferðamenn sem gista í tjöldum, fellihýsum, húsbílum og hjólhýsum. Tveir leikvellir fyrir börnin, grillaðstaða, rafmagn, ferðaklósett-losun Sumarið 2009 var nýtt og glæsilegt tjaldsvæði tekið í notkun í Grindavík. Þá var nýtt 200 fermetra þjónustuhús tekið í notkun í maí 2011. Um er að ræða 13.500 fm svæði sem staðsett er við Austurveg 26. Þar eru 42 stæði fyrir húsbíla, fellihýsi og tjaldvagna. Afgirt svæði og sérhannað Fullkomin aðstaða til seyrulosunar. Malbikuð og hellulögð bílastæði í innkomu tjaldsvæðisins. Tvö leiksvæði fyrir börn með rólum, 2 köstulunum, kóngulóarneti o.fl. Í nýja þjónustuhúsinu er aðstaða til að elda, sturtur, þvottahús og aðgangur að interneti. Aðkoma: Þegar keyrt er inn í bæinn er ekið í gegnum hringtorg og svo beint áfram eftir Víkurbrautinni. Beygt til vinstri við Ránargötu og svo til vinstri inn Austurveg (við kirkjuna). Aldurstakmark á tjaldsvæðinu fyrir þá sem ferðast einir er 18 ár (20 ár á Sjóaranum síkáta) Sími umsjónarmanns á tjaldsvæði er 830-9090. Uppákomur: Bæjarhátíðin Sjóarinn síkáti, sjómannadagshelgina 5.-7. júní. Fjölskylduhátíð með glæsilegri dagskrá frá Viðburða- og menningardagskrá Grindavíkurbæjar og Saltfisksetursins; Jónsmessuganga, listsýningar, náttúruvika, gönguhátíð, Þórkötlustaðaréttir o.fl. Sjá www.sjoarinnsikati.is. Gott bílastæði VERÐSKRÁ: Verð fyrir fullorðna kr. 2.200 (gistináttagjald innifalið).Fjórða hver nótt er ókeypis. Ókeypis fyrir 14 ára og yngri. Rafmagn kr. 1.300kr per. sólarhring. Einn þvottur í þvottavél kr. 800 Notkun á þurrkara kr. 800 Seyrulosun innifalin í verði. Sturta innifalin í verði. Bara sturta 500 kr. Ekki er hægt að panta pláss.
I-stay
Á tjaldsvæðinu er þjónustuhús þar sem eru salerni, sturtur, útivaskar (með heitt og kalt vatn), einnig er hægt að fá afnot af þvottavél og þurrkara. Hjólastóla aðgengi er að salernum og sturtum.  Á tjaldsvæðinu eru rafmagnstenglar og aðstaða til að losa salerni húsbíla og vatnsfylling.