Fara í efni

Sumir veitingastaðir eru með heimsendingarþónustu eða bjóða viðskiptavinum upp á að sækja matinn. 

Röstin - veitingastaður
Röstin er staðsett á efri hæð byggðasafnsins á Garðskaga. Þar er hægt að fá góðan mat á sanngjörnu verði allt árið um kring. Útsýnið frá Röstinni er frábært og hægt að njóta sólarlagsins yfir Snæfellsjökil, fjölbreytts fuglalífs og stundum má sjá hvali rétt undan ströndinni. Heimsókn á Byggðasafnið á neðri hæðinni og í stóra vitann er er frábær viðbót við góðan málsverð á Röstinni. Vitarnir á Garðskaga voru byggðir 1897 og 1944. Röstin stendur un 20 metra frá ströndinni og útsýni yfir Faxaflóann og mikið fuglalíf gera heimsókn á Röstina að sérstakri upplifun. Stóri vitinn er sá hæsti á Íslandi og geymir hann tvær áhugaverðar sýningar, norðurljósasýningu og hvalasýningu. Frá toppi vitans er stórkostlegt útsýni. Það er líka tjaldsvæði á Garðskaga. Fyrir hópa hafið samband við safnstjóra í síma 893-8909 eða með tölvupósti: johann@gardskagi.com.  Opið:Mánudaga-Miðvikudaga kl. 17 - 21 Fimmtudaga-Sunnudaga kl. 12 - 21
Papa´s Pizza
Fjölskylduvænn veitingastaður þar sem þú getur einnig sótt, eða fengið sent heim til þín. Við erum sérfræðingar í pizzum og djúpsteiktum fisk, bjóðum einnig uppá steikur, hamborgara, og ýmislegt fleira, getum tekið við hópum stórum sem smáum allt að 120 manns. Við erum staðsett beint á móti Saltfisksetrinu í Grindavík í um einnar mínútu göngufæri við höfnina. Erum með boltan í beinni og frítt wi-fi fyrir viðskiptavini. OPNUNARTÍMARDaglega 12:00 - 21:00

Aðrir (3)

Domino’s Pizza Flatahraun 13 220 Hafnarfjörður 581-2345
Domino’s Pizza Hafnargötu 86 230 Reykjanesbær 581-2345
Domino’s Pizza Fitjar 2 260 Reykjanesbær 581-2345