Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

12 August 2026

Almyrkvi á sólu — Reykjanesskagi

Almyrkvi á sólu verður sýnilegur á Reykjanesskaga þann 12. ágúst 2026. Búist er við miklum fjölda gesta og gera má ráð fyrir aukinni umferð, álagi á þjónustu, mikilli eftirspurn eftir bílastæðum og tjaldsvæðum.

Á þessari síðu má finn hagnýtar upplýsingar sem nýtast ferðamönnum sem æta að heimsækja Reykjanesskaga dagana í kringum Almyrkva, þar má nefna upplýsingar um útsýnisstaði, öryggi, gistingu á tjaldsvæðum og svör við algengum spurningum fyrir og meðan á atburðinum stendur.

Tímasetningar

Deildarmyrkvi hefst: 16:46
Myrkvinn nær hámarki: 17:48
Deildarmyrkva lýkur: 18:47

Nákvæmar tímasetningar og lengd almyrkva eru mismunandi eftir staðsetningu. Notið kortið til að sjá upplýsingar fyrir hvern stað.

Mætið snemma, dveljið lengi og komið undirbúin.

Veljið útsýnisstað fyrirfram, gerið ráð fyrir auknum ferðatíma og tíma til að finna bílastæði, og verið tilbúin að dvelja áfram eftir að myrkvanum lýkur til að draga úr umferðartöfum.

Áður en lagt er af stað

• Nýtið ykkur skilgreinda safnstaði þar sem það er mögulegt

• Skoðið kortið til að sjá tímasetningar fyrir ykkar staðsetningu

• Gera má ráð fyrir umferðartöfum fyrir og eftir myrkvann

• Alls ekki stöðva eða leggja bílum í vegköntum

• Á afskekktum svæðum er þjónusta og farsímasamband takmarkað

• Takið með mat, vatn, hlý föt og hafið nægt eldsneyti eða hleðslu

Síðan verður uppfærð eftir því sem nánari upplýsingar berast varðandi umferðarstýringu, safnstaði og öryggi.

Kort af almyrkvaslóð

Almyrkvi á öllum Reykjanesskaganum

Á kortinu hér fyrir neðan getur þú fundið upplýsingar um hvar almyrkvinn verður sýnilegur og hvernig þú getur upplifað hann í þínu nærumhverfi.

Ýttu á stækkunarglerið vinstra megin á kortinu og settu inn heimilisfangið þitt og sjáðu hvort hann sjáist frá heimilinu og í hvaða átt þú átt að horfa. Einnig er hægt að ýta beint á kortið til að staðsetja pinna. Með því móti getur þú fundið út fleiri áhugaverða staði til að skoða almyrkvann. 

Kortið er af vefnum solmyrkvi2026.is og getur fengið allar upplýsingar um atburðinn á þeirri síðu.

Útsýnis- og safnstaðir á Reykjanesskaga

Gestir eru hvattir til að nýta sér samkomustaði á náttúrusvæðum og þéttbýliskjörnum víðs vegar um Reykjanes. Á þessum stöðum er betra aðgengi að bílastæðum, salernum, þjónustu, neyðaraðstoð og upplýsingum.

Lengd almyrkvans er mismunandi eftir staðsetningu. Á mörgum samkomustöðum geta gestir upplifað almyrkva í meira en 1 mínútu og 30 sekúndur, auk þess sem þar er betra aðgengi að þjónustu og aðstöðu.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Reykjanesskagi – náttúrusvæði

Garðskagi

Suðurnesjabær

Útsýnisstaður í Garðinum.

Lengd almyrkva: 1m 43s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:41

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Hvalsneskirkja

Hvalsnes

Safnstaður með góðu aðgengi, bílastæðum, aðgengi að þjónustu og aðstöðu.

Lengd almyrkva: 1m 43s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:41

Fólksbílar Rútur Malbik Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Hafnarberg

Hafnir

Útsýnisstaður á Höfnum.

Lengd almyrkva: 1m 47s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:02

Fólksbílar Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Brúin á milli heimsálfa

Hafnir

Útsýnisstaður hjá Brúnni á milli heimsálfa með góðu aðgengi, salernisaðstöðu og bílastæðum.

Lengd almyrkva: 1m 46s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:07

Fólksbílar Rútur Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Gunnuhver

Reykjanes

Útsýnisstaður hjá Gunnuhver á Reykjanesskaga.

Lengd almyrkva: 1m 46s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:11

Fólksbílar Rútur Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Reykjanesviti

Reykjanes

Útsýnisstaður hjá Reykjanesvita á Reykjanesskaga.

Lengd almyrkva: 1m 48s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:11

Fólksbílar Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Fagradalsfjall

Grindavík

Fjallasvæði með salernisaðstöðu og bílastæðum.

Lengd almyrkva: 1m 48s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:11

Fólksbílar Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Kálfatjörn

Vogar

Útsýnisstaður í Vogunum.

Lengd almyrkva: 1m 28s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:55

Fólksbílar Möl Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Reykjanesskagi – safnstaðir

Skrúðgarður

Ytri-Njarðvík

Samkomustaður í þéttbýli með bílastæðum og góðri aðstöðu fyrir gesti.

Lengd almyrkva: 1m 40s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:52

Malbik Fólksbílar Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Kambur

Innri-Njarðvík

Samkomustaður í þéttbýli með takmörkuðu bílastæðaplássi.

Lengd almyrkva: 1m 37s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:57

Fólksbílar Malbik

Skoða á korti →

Fyrir ofan Holtaskóla

Keflavík

Samkomustaður í þéttbýli með bílastæðum og góðu aðgengi. Bílastæði fyrir rútur eru einnig í boði.

Lengd almyrkva: 1m 40s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:53

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Ráðhúsið

Ásbrú

Samkomustaður í þéttbýli með bílastæðum og góðu aðgengi. Bílastæði fyrir rútur eru einnig í boði. 

Lengd almyrkva: 1m 46s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:07

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Hópsskóli

Grindavík

Samkomustaður í þéttbýli með bílastæðum og góðu aðgengi.

Lengd almyrkva: 1m 36s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:12

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Íþróttahúsið

Grindavík

Samkomustaður í þéttbýli með salernisaðstöðu, bílastæðum og góðu aðgengi. Mælt er með þessum stað fyrir gesti sem koma á bíl.

Lengd almyrkva: 1m 37s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:12

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi Salerni

Skoða á korti →

Hópið

Grindavík

Samkomastaður í þéttbýli með bílastæðum. 

Lengd almyrkva: 1m 37s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:12

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi 

Skoða á korti →

Grunnskóli Grindavíkur

Grindavík

Samkomustaður í þéttbýli með góðu aðgengi.

Lengd almyrkva: 1m 37s

Myrkvinn í hámarki: 17:49:13

Fólksbílar Rútur Malbik Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Skagabraut

Suðurnesjabær

Samkomustaður í þéttbýli með góðu aðgengi, bílastæðum og salernisaðstöðu. Gjaldtaka er á bílastæði.

Lengd almyrkva: 1m 43s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:42

Fólksbílar Rútur Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Útskálar

Suðurnesjabær

Samkomustaður í þéttbýli með góðu aðgengi, bílastæðum og salernisaðstöðu. Gjaldtaka er á bílastæði.

Lengd almyrkva: 1m 43s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:42

Fólksbílar Rútur Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Víðisvöllur

Suðurnesjabær

Samkomustaður í þéttbýli með aðgengi og bílastæðum. Gjaldtaka er á bílastæði.

Lengd almyrkva: 1m 42s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:43

Fólksbílar Rútur Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Bræðslan

Suðurnesjabær

Samkomustaður í þéttbýli með aðgengi, salernisaðstöðu og bílastæðum. Gjaldtaka er á bílastæði.

Lengd almyrkva: 1m 45s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:45

Fólksbílar Rútur Salerni Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Sandgerðisskóli

Suðurnesjabær

Samkomustaður í þéttbýli með góðu aðgengi og bílastæðum. Gjaldtaka er á bílastæði.

Lengd almyrkva: 1m 45s

Myrkvinn í hámarki: 17:48:47

Fólksbílar Rútur Bílastæði Aðgengi

Skoða á korti →

Umferð og öryggi

Öryggis og umferðarupplýsingar

Búist er við miklum fjölda gesta á Reykjanesi þann 12. ágúst 2026. Ferðatími getur orðið lengri en venjulega og umferðarstýring verður á nokkrum svæðum til að auka öryggi og tryggja aðgengi viðbragðsaðila.

Vegfarendur þurfa að gera ráð fyrir töfum, lægri hámarkshraða, tímabundnum takmörkunum á umferð og takmörkuðum bílastæðum við fjölsótta útsýnisstaði.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin

Með því að leggja snemma af stað og dvelja áfram á staðnum eftir að myrkvanum lýkur má draga úr álagi á vegakerfið. Tíminn strax eftir myrkvann getur orðið sérstaklega annasamur ef margir leggja af stað á sama tíma.

Áætluð umferðastýring

Vatnsleysustrandarvegur (vegur 420)

Tímabundin einstefna verður á Vatnsleysustrandarvegi frá Vogum í austurátt í átt að Reykjavík og tengingu við Reykjanesbraut. Upphafstími verður auglýstur síðar.

Áætlaðar ráðstafanir:

  • Einstefna frá Vogum
  • Lægri hámarkshraði verður auglýstur þegar nær dregur

Ósabotnavegur (vegur 45)

Tímabundin einstefna verður á Ósabotnavegi frá Nesvegi í norðurátt í átt að Suðurnesjabæ. Upphafstími verður auglýstur síðar.

Áætlaðar ráðstafanir:

  • Einstefna frá Nesvegi
  • Lægri hámarkshraði verður auglýstur þegar nær dregur

Gestir ættu ekki að gera ráð fyrir að geta ekið óhindrað inn og út af svæðinu á meðan viðburðinum stendur. Fylgið skiltum og fyrirmælum yfirvalda.

Mikilvæg ráð fyrir ferðalanga

• Skipuleggið leiðina áður en lagt er af stað

• Gerið ráð fyrir lengri ferðatíma en venjulega

• Ekki stöðva eða leggja í vegköntum

• Notið skilgreinda samkomustaði þar sem hægt er

• Fylgið skiltum og fyrirmælum yfirvalda

• Haldið leiðum viðbragðsaðila greiðum

• Fyllið á eldsneyti eða hlaðið ökutæki áður en lagt er af stað

• Takið með mat, vatn, hlý föt og nauðsynlegar vistir

Forðist ákvarðanir á síðustu stundu

Forðist að taka skyndiákvarðanir um ferðalög rétt fyrir sólmyrkvann. Mikil hreyfing ökutækja getur fljótt skapað umferðarteppu og dregið úr öryggi. Veljið áhorfsstað fyrirfram, fylgist með opinberum upplýsingum og forðist óþarfa akstur á klukkustundunum fyrir myrkvann.

Horfið á myrkvann með öruggum hætti

Sólmyrkvi er öruggur áhorfs ef réttum varúðarráðstöfunum er fylgt. Nota þarf viðurkennd sólmyrkvagleraugu eða öruggar sólarsíur þegar einhver hluti sólarinnar er sýnilegur.

Sólmyrkvagleraugu

Nota þarf sólmyrkvagleraugu í deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.

Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að horfa með berum augum.

Venjuleg sólgleraugu eru ekki örugg til að horfa beint í sólina.

Sjónaukar og myndavélar

Horfið aldrei á sólina í gegnum handsjónauka, sjónauka eða myndavélalinsu án viðeigandi sólarsíu.

Sólmyrkvagleraugu duga ekki sem vörn ef horft er í gegnum sjónauka eða myndavélalinsu.

Sólarsíur þurfa að vera festar framan á ljósop sjónauka eða linsu.

Ef einkenni koma fram

Sjónhimnan hefur enga verkjanema og því getur skaði orðið án þess að verkur komi strax fram.

Leitið ráða ef sjón verður óskýr, dökkur blettur myndast í sjónsviði, litaskyn breytist eða ljósfælni og augnóþægindi koma fram.

Í neyð skal hringja í 112. Fyrir heilbrigðisráðgjöf má hringja í 1700.

Ef grunur er um sólarskaða á augum

  • Hættið strax að horfa í sólina.
  • Hvílið augun og forðist frekara álag.
  • Ekki nudda augun.
  • Fjarlægið augnlinsur ef þær valda óþægindum.
  • Notið sólgleraugu ef ljós ertir augun.
  • Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki ef einkenni koma fram.

Besta vörnin er forvörn: notið viðurkennd sólmyrkvagleraugu, horfið ekki beint í sólina þegar einhver hluti hennar er sýnilegur og gætið sérstaklega að börnum.

Eftir sólmyrkvann

Búast má við umferðartöfum eftir sólmyrkvann þar sem margir gestir gætu lagt af stað á sama tíma. Með því að dvelja lengur á svæðinu má draga úr álagi og stuðla að öruggari umferð.

Dveljið lengur — ef lagt er af stað strax eftir sólmyrkvann gæti það þýtt bið í umferð.

Algengar spurningar um almyrkvann

Hvar er mælt með að horfa á almyrkvann?

Á þessari síðu er kort þar sem hægt er að skoða útsýnisstaði víða um Reykjanes.
Með því að smella á stað á kortinu má sjá tímasetningar myrkvans og áætlaða lengd almyrkva á viðkomandi stað.

Gestir eru hvattir til að nýta skilgreinda safnstaði í þéttbýli á Reykjanesi.
Þessir staðir eru betur undirbúnir til að taka á móti gestum og þar er aðgengi að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur.

Með því að vera í eða nálægt þéttbýli er einnig styttra í viðbragðsþjónustu, eldsneyti, mat, hleðslustöðvar og skjól ef veður breytist.

Mælt er með safnstöðum

Skilgreindir safnstaðir eru í eftirfarandi byggðakjörnum:

  • Njarðvík – Skrúðgarður
  • Njarðvík – Kambur
  • Keflavík – fyrir bakvið Holtaskóla, hjá Fjölbrautaskóla Suðurnesja
  • Keflavík – Ráhúsið á Ásbrú
  • Grindavík – Hópsskóli
  • Grindavík – Íþróttahúsið
  • Grindavík – Hópið
  • Grindavík – Grunnskóli Grindavíkur

Þessir staðir henta almennt betur til að taka á móti fjölda gesta en afskekktari staðir.

Okkar ráðlegging

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Gerið ráð fyrir lengri ferðatíma og tíma til að finna bílastæði. Verið tilbúin að dvelja áfram eftir að myrkvanum lýkur og takið með hlý föt, mat, vatn og nauðsynlegar vistir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Með því að velja safnstað í þéttbýli er líklegra að upplifunin verði öruggari.

Hvenær hefst myrkvinn, hvenær verður hann í hámarki og hvenær lýkur honum

Tímasetningar og lengd myrkvans eru mismunandi eftir því hvar fólk er statt á Reykjanesi.
Lengd almyrkva er frá um 1 mínúta og 45 sekúndur á vestustu stöðum niður í aðeins 1 mínútu á öðrum stöðum.

Tímasetningarnar hér fyrir neðan eru almenn viðmið fyrir Reykjanes.

Tímasetningar

Deildarmyrkvi hefst — 16:46
Almyrkvi hefst — 17:47
Myrkvinn í hámarki — 17:48
Almyrkva lýkur — 17:49
Deildarmyrkva lýkur — 18:47

Gestir ættu að vera komnir á sinn stað vel áður en almyrkvi hefst, þar sem aðstæður og ferðatími geta verið breytileg eftir svæðum.

Hversu snemma ætti ég að mæta á útsýnisstaði?

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Búist er við miklum fjölda gesta á Reykjanesi á degi myrkvans. Ferðatími getur orðið lengri en venjulega og bílastæði og útsýnisstaðir geta fyllst fljótt.

Mælt er með því að mæta tímanlega og gera ráð fyrir lengri tíma í akstur, bílastæði og göngu að útsýnisstað. Eftir að myrkvanum lýkur má einnig gera ráð fyrir umferðartöfum og því er ráðlegt að dvelja áfram um stund áður en lagt er af stað.

Takið með hlý föt, mat, vatn og nauðsynlegar vistir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra. Veður getur breyst hratt og þjónusta getur verið takmörkuð á sumum svæðum.

Góður undirbúningur dregur úr álagi og stuðlar að öruggari upplifun fyrir alla.

Verða bílastæði við útsýnisstaði?

Já — bílastæði eru við skilgreinda útsýnis- og safnstaði, en fjöldi stæða verður takmarkaður.

Bílastæði verða undirbúin við safnstaði víða um Reykjanesið. Þessir staðir eru valdir vegna þess að þar er hægt að taka á móti gestum með öruggari hætti og veita aðgang að grunnþjónustu.

Eftirspurn verður þó mikil og sum bílastæði geta fyllst fljótt. Umferðartafir eru einnig líklegar, sérstaklega þegar nær dregur almyrkvanum.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina fyrirfram, samnýta bíla þar sem hægt er og fylgja merkingum og leiðbeiningum á staðnum.

Ekki leggja í vegköntum eða á svæðum sem ekki eru merkt sem bílastæði. Slíkt getur skapað hættu og hindrað aðgengi viðbragðsaðila.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má ég stöðva bílinn í vegkanti til að horfa á myrkvann?

Nei — ekki er mælt með því að stöðva í vegkanti og slíkt getur verið hættulegt.

Bílar í vegköntum geta hindrað umferð og tafið viðbragðsaðila ef neyðartilvik koma upp. Jafnvel stutt stopp geta skapað hættu, sérstaklega á þröngum vegum eða þar sem skyggni er takmarkað.

Gestir eru hvattir til að nota skilgreinda útsýnisstaði, bílastæði eða safnstaði þar sem öruggt er að stöðva og fylgjast með myrkvanum.

Skipuleggið ferðina fyrirfram og gerið ráð fyrir nægum tíma til að komast á valinn stað.

Verða umferðartafir eða vegalokanir á degi myrkvans?

Já — búast má við mikilli umferð og tímabundnum takmörkunum á sumum vegum.

Mikill fjöldi gesta verður á ferð um Reykjanesið og tafir eru líklegar bæði fyrir og eftir myrkvann. Umferðarstýring verður á ákveðnum svæðum til að auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar komist leiðar sinnar ef þörf krefur.

Aukinn viðbúnaður verður hjá lögreglu, björgunarsveitum, slökkviliði, landvörðum og heilbrigðisþjónustu á svæðinu.

Áætlaðar umferðartakmarkanir á Reykjanesi

Tímabundin einstefna verður á eftirfarandi vegum:

  • Vatnsleysustrandarvegur (Road 420): frá Vogum austur í átt að Reykjavík um Reykjanesbraut.
  • Ósabotnavegur (Road 45): frá Nesvegi norður til Suðurnesjabæjar.

Til skoðunar er að setja á takmarkaðan aðgang að Vigdísarvallavegi (vegur 428) þar sem umferð yrði vöktuð.

Kort af einstefnuleiðum og umferðartakmörkunum

Athugið að þessar umferðarráðstafanir og takmarkanir geta breyst. Kynnið ykkur ávallt nýjustu upplýsingar áður en lagt er af stað og fylgist með stöðu vega á umferdin.is.

Markmið þessara ráðstafana er að:

  • tryggja aðgengi viðbragðsaðila
  • draga úr hættu á umferðarteppum og slysum
  • bæta öryggi allra vegfarenda

Gestir eru beðnir um að fylgja fyrirmælum yfirvalda.

Okkar ráðlegging

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að ferðast fyrr um daginn og bíða með brottför eftir að myrkvanum lýkur má draga úr umferðartöfum og stuðla að öruggari umferð.

Skipulagning fyrirfram er besta leiðin til að draga úr töfum og óþarfa álagi.

Þarf ég sérstök gleraugu til að horfa á sólmyrkvann?

Já — nota þarf sérstök sólmyrkvagleraugu eða síur til að fylgjast með myrkvanum.

Venjuleg sólgleraugu, sama hversu dökk þau eru, eru ekki örugg til að horfa beint í sólina. Örugg sólmyrkvagleraugu eru með sérstökum síum sem draga úr hættulegri útfjólublárri og innrauðri geislun og minnka birtu sólarinnar niður á öruggt stig.

Hvenær þarf að nota sólmyrkvagleraugu?

  • Nota þarf gleraugun í öllum deildarmyrkva, bæði fyrir og eftir almyrkva.
  • Aðeins á meðan almyrkvi stendur yfir, þegar tunglið hylur sólina að fullu, er öruggt að taka þau af í stutta stund. Setjið þau aftur upp um leið og einhver hluti sólarinnar verður sýnilegur.

Hvað þarf að athuga?

Örugg sólmyrkvagleraugu ættu að:

  • vera merkt með alþjóðlega öryggisstaðlinum ISO 12312-2
  • vera laus við rispur, göt eða skemmdir
  • sitja vel og hylja augun að fullu

Þessi staðall sýnir að gleraugun eru sérstaklega ætluð til að horfa beint á sólina.

Á vefsíðunni https://solmyrkvagleraugu.is/ má finna úrval af sólmyrkvagleraugum.

Hvar finn ég salerni og grunnþjónustu?

Salerni og grunnþjónusta verða við skilgreinda safnstaði í þéttbýli og útsýnisstaði á Reykjanesi.

Þessir staðir hafa verið valdir vegna þess að þar er hægt að taka á móti gestum með öruggari hætti og veita aðgang að mikilvægri þjónustu, svo sem salernum, bílastæðum, sorplosun og aðstoð ef þörf krefur. Margir staðanna eru við íþróttamiðstöðvar, tjaldsvæði eða félagsaðstöðu þar sem þjónusta er þegar til staðar.

Þjónusta getur verið takmörkuð á afskekktum stöðum og þar er ekki víst að finna mat, eldsneyti eða hleðslustöðvar.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina og nota safnstaði þar sem það er mögulegt.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með það sem þið þurfið fyrir nokkrar klukkustundir utandyra, þar á meðal mat, vatn, hlý föt og nauðsynlegar vistir.

Hvar get ég tjaldað eða gist?

Gestir sem ætla að gista á Reykjanesi ættu að nýta skilgreind tjaldsvæði, gistiheimili eða aðra skráða gistingu.

Gisting í tjaldvögnum, húsbílum og sambærilegum ökutækjum er almennt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða þar sem gisting er sérstaklega leyfð. Gistirými og pláss á tjaldsvæðum getur verið takmarkað, sérstaklega í kringum almyrkvann, og því er mikilvægt að skipuleggja sig tímanlega.

Upplýsingar um tjaldsvæði, aðstöðu og tengiliði má finna hér:

Sjá tjaldsvæði á Reykjanesi

Hvað á ég að gera ef veðrið er slæmt þar sem ég er?

Veður á Reykjanesi getur verið mjög mismunandi eftir svæðum. Gestir eru þó hvattir til að forðast skyndiákvarðanir um akstur á síðustu stundu, þar sem slíkt getur skapað umferðartafir og dregið úr öryggi.

Besta leiðin er að velja útsýnisstað fyrirfram, mæta snemma og vera undirbúin að dvelja þar meðan á viðburðinum stendur.

Forðist óþarfa akstur síðustu klukkustundirnar fyrir myrkvann.

Ágúst er sumar á Íslandi, en veður getur samt breyst hratt. Hiti getur verið lágur, vindur sterkur og rigning algeng — sérstaklega þegar staðið er úti í nokkrar klukkustundir.

Notið opinberar upplýsingaveitur fyrir nýjustu upplýsingar:

Ef veður verður hættulegt, til dæmis vegna mikils vinds, lélegs skyggnis eða erfiðra vegaaðstæðna, skal fylgja leiðbeiningum yfirvalda og viðbragðsaðila.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með hlý og vatnsheld föt, mat, vatn og það sem þið þurfið fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Hversu margir verða á útsýnisstöðunum?

Erfitt er að segja nákvæmlega til um fjölda á hverjum stað. Hins vegar er búist við miklum fjölda gesta á Reykjanesi og margir staðir geta fyllst.

Bílastæði, tjaldsvæði og þjónusta eru takmörkuð víða og sum svæði geta fyllst fyrr en búist er við. Þegar staður er fullur getur aðgengi verið takmarkað eða umferð beint annað.

Gestir eru hvattir til að skipuleggja ferðina fyrirfram og gefa sér góðan tíma til að komast á valinn stað.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að mæta snemma aukast líkur á að finna öruggt bílastæði og koma sér fyrir áður en mesta umferðin hefst. Með því að dvelja áfram eftir myrkvann má draga úr umferðartöfum og auðvelda umferðarstýringu og viðbragðsaðilum að sinna sínu hlutverki.

Með mat, vatni, hlýjum fötum og nauðsynlegum vistum er auðveldara að bíða við annasamar aðstæður.

Þarf að bóka gistingu fyrirfram?

Já. Gisting á Reykjanesi verður mjög takmörkuð á meðan á almyrkvanum stendur.
Mörg hótel og gistiheimili hafa verið fullbókuð lengi, í sumum tilvikum í meira en tvö ár.

Tjaldsvæði eru víða á Reykjanesi, en mörg þeirra eru ekki með bókunarkerfi. Þar gildir því oft fyrstur kemur, fyrstur fær.

Eina raunhæfa leiðin til að tryggja pláss á tjaldsvæði getur verið að mæta snemma.

Lista yfir tjaldsvæði á Reykjanesi, ásamt staðsetningu og tengiliðaupplýsingum, má finna hér:

Tjaldsvæði

Gestir eru hvattir til að skipuleggja gistingu tímanlega og gera ráð fyrir auknum ferðatíma, þar sem tjaldsvæði geta fyllst fljótt.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verða viðbragðsaðilar á útsýnisstöðum?

Já. Viðbragðsaðilar verða að störfum á Reykjanesi meðan á almyrkvanum stendur, þar á meðal lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið og heilbrigðisþjónusta. Aukinn viðbúnaður verður til að styðja við öryggi og bregðast við atvikum ef þörf krefur.

Margir safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir vegna þess að þeir eru nálægt nauðsynlegri þjónustu og auðveldara er að sinna þeim ef eitthvað kemur upp.

Hafa þarf í huga að úrræði eru takmörkuð og viðbragðstími getur verið lengri á afskekktum stöðum eða þegar mikil umferð er á vegum. Gestir þurfa að skipuleggja sig og bera ábyrgð á eigin undirbúningi.

Með því að velja útsýnisstað í eða nálægt þéttbýli er styttra í aðstoð, aðstöðu og upplýsingar ef þörf krefur.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Takið með nauðsynleg lyf, mat, vatn og viðeigandi fatnað og gerið ráð fyrir auknum ferðatíma.

Hvað gerist ef neyðartilvik kemur upp?

Ef neyðartilvik kemur upp skal hringja í 112.
Viðbragðsaðilar — þar á meðal lögregla, björgunarsveitir, slökkvilið og heilbrigðisþjónusta — verða að störfum á Reykjanesi meðan á almyrkvanum stendur.

Fylgið fyrirmælum viðbragðsaðila, starfsfólks eða sjálfboðaliða á staðnum. Þau eru til staðar til að halda utan um aðstæður með öruggum hætti.

Í flestum tilvikum er öruggast að halda kyrru fyrir nema fyrirmæli berist um annað. Óþarfa hreyfing getur skapað umferðartafir og gert viðbragðsaðilum erfiðara fyrir.

Margir safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir vegna þess að þeir eru nálægt þjónustu og auðveldara er að sinna þeim ef neyðartilvik kemur upp.

Gestir geta stuðlað að öryggi með því að skipuleggja sig, fylgja leiðbeiningum og vera undirbúnir fyrir nokkrar klukkustundir utandyra.

Mætið snemma, dveljið lengur, komið undirbúin og sýnið aðgát.

Verða takmarkanir á aðgengi að ákveðnum stöðum?

Já. Tímabundnar aðgangstakmarkanir og umferðarstýring verða á sumum svæðum á Reykjanesi á degi myrkvans. Þessar ráðstafanir eru til að stýra fjölda, auka öryggi og tryggja að viðbragðsaðilar komist leiðar sinnar ef þörf krefur.

Gestir eru hvattir til að:

  • fylgja vegmerkingum og fyrirmælum lögreglu og starfsfólks
  • virða lokanir og afmörkuð svæði
  • skipuleggja leiðina fyrirfram
  • gera ráð fyrir auknum ferðatíma

Ráðstafanirnar eru til að stuðla að öryggi og betri framkvæmd viðburðarins.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verður hægt að kaupa mat, eldsneyti og nauðsynjar?

Já. Matur, eldsneyti og grunnþjónusta verður í boði í þéttbýli á Reykjanesi. Hins vegar má gera ráð fyrir mun meiri eftirspurn en venjulega, sérstaklega á degi myrkvans.

Gestir eru hvattir til að undirbúa sig vel.

Fyllið á eldsneyti eða hlaðið bílinn áður en farið er á útsýnisstað, takið með nægan mat og vatn fyrir nokkrar klukkustundir og tryggið að nauðsynlegar vistir séu meðferðis.

Safnstaðir í þéttbýli hafa verið valdir meðal annars vegna þess að þeir eru nær þjónustu á borð við verslanir, eldsneyti, veitingastaði og viðbragðsþjónustu.

Veitingastaðir og kaffihús geta orðið mjög annasöm og í sumum tilvikum getur verið nauðsynlegt að bóka fyrirfram.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Með því að taka með mat, vatn og nauðsynjar — og tryggja að eldsneyti eða hleðsla sé næg — má draga úr álagi á staðbundna þjónustu.

Hvar fæ ég áreiðanlegar veðurupplýsingar?

Áreiðanlegasta veðurupplýsingaveitan á Íslandi er Veðurstofa Íslands:

Skýjahuluspáin sýnir áætlaðar aðstæður yfir landinu og getur nýst við að meta hvar líklegra er að sjá til sólar. Hún er þó spá og getur breyst þegar nær dregur.

Gestir eru hvattir til að fylgjast reglulega með veðurspám dagana fyrir viðburðinn og aftur á sjálfum deginum.

Veljið staðsetningu fyrirfram, fylgist með aðstæðum og forðist skyndiákvarðanir um akstur á síðustu stundu.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má tjalda utan skilgreindra tjaldsvæða?

Í flestum tilvikum, nei — gestir ættu að nota skilgreind tjaldsvæði.

Tjöldun utan tjaldsvæða á Íslandi er verulega takmörkuð. Gisting í húsbílum, hjólhýsum og sambærilegum ökutækjum er almennt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða með skýru leyfi landeiganda.

Takmarkaðar undantekningar geta átt við um lítil tjöld á afskekktum óbyggðum svæðum, en þær eru þröngar og eiga sjaldan við í nágrenni fjölsóttra staða, vega eða byggðar.

Í friðlýstum svæðum, á fjölsóttum ferðamannastöðum og nálægt vegum eða byggð er tjöldun utan skilgreindra svæða oft óheimil.

Okkar ráðlegging

Gestir eru eindregið hvattir til að nota skilgreind tjaldsvæði.

Notkun tjaldsvæða hjálpar til við að:

  • vernda viðkvæma náttúru
  • tryggja aðgengi að salernum, sorplosun og grunnþjónustu
  • draga úr álagi á nærsamfélög og viðbragðsaðila
  • forðast sektir eða að þurfa að færa sig

Að gista á tjaldsvæði er öruggasti og fyrirsjáanlegasti kosturinn, sérstaklega á álagstímum eins og í kringum almyrkvann.

Tjaldsvæði á Reykjanesi má finna hér

Má sofa í húsbíl eða campervan á bílastæði?

Nei — gisting í húsbílum eða campervan á bílastæðum er almennt ekki heimil á Íslandi nema svæðið sé sérstaklega ætlað til næturgistingar.

Gisting í húsbílum, ferðabílum og sambærilegum ökutækjum er yfirleitt aðeins heimil á skipulögðum tjaldsvæðum eða þar sem næturgisting er sérstaklega leyfð. Flest bílastæði, áningarstaðir og ferðamannastaðir eru ekki ætluð til gistingar.

Gisting á bílastæðum getur skapað öryggisvandamál, hindrað aðgengi viðbragðsaðila og aukið álag á innviði, sérstaklega þegar margir eru á ferð.

Gestir eru eindregið hvattir til að nota skilgreind tjaldsvæði.
Tjaldsvæði bjóða upp á öruggari aðstöðu, aðgang að salernum og sorplosun og hjálpa til við að vernda náttúru og nærsamfélög.

Skipulagning fyrirfram og notkun tjaldsvæða er öruggasti og fyrirsjáanlegasti kosturinn á meðan á almyrkvanum stendur.

Tjaldsvæði á Reykjanesi má finna hér

Eru varðeldar eða útieldun leyfð?

Opnir eldar eru almennt ekki leyfðir á Íslandi.

Kveikja elds utandyra er háð takmörkunum þar sem eldur getur fljótt skapað hættu og valdið skemmdum á viðkvæmum gróðri, sérstaklega í vindi eða þurrki. Ekki má kveikja eld þar sem hann getur skapað hættu fyrir fólk, eignir eða umhverfi.

Á flestum tjaldsvæðum og náttúrusvæðum eru opnir eldar bannaðir og gestum er ætlað að nota öruggari kosti, svo sem gashellur eða sérstaka eldunaraðstöðu þar sem hún er til staðar.

Það sem getur verið heimilt

  • að nota ferðagashellur eða búnað sem er ætlaður til útieldunar
  • að nota sérstaka eldunar- eða grillaðstöðu þar sem hún er til staðar
  • að fylgja tímabundnum brunatakmörkunum ef þær eru gefnar út

Það sem er ekki heimilt

  • að kveikja opinn eld á jörðu
  • að gera varðeld í náttúrunni eða nálægt gróðri
  • að nota eld þar sem hann getur skapað hættu

Gestir eru hvattir til að nota aðstöðu á tjaldsvæðum eða öruggan ferðabúnað og fylgja öllum leiðbeiningum á staðnum.

Þetta verndar náttúru, dregur úr eldhættu og auðveldar viðbragðsaðilum að sinna sínu hlutverki ef eitthvað kemur upp.

Eru aðgengilegir útsýnisstaðir fyrir fólk með skerta hreyfingu?

Aðgengilegir útsýnisstaðir eru á mörgum skilgreindum safnstöðum í þéttbýli á Reykjanesi.

Þessir staðir hafa verið valdir vegna þess að þar er betra aðgengi að þjónustu og aðstöðu, þar á meðal malbikuðum eða sléttum flötum, salernum, bílastæðum og aðstoð ef þörf krefur. Margir staðanna eru við íþróttamiðstöðvar, félagsheimili eða opin svæði sem henta breiðum hópi gesta.

Aðgengileg bílastæði og þrepalaust aðgengi eru líklegri til að vera til staðar á þessum stöðum en á afskekktum útsýnisstöðum eða náttúrusvæðum.

Gestir með skerta hreyfigetu eru hvattir til að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli, þar sem þjónusta, viðbragð og aðstaða eru aðgengilegri.

Ef þörf er á sértækri aðstöðu er ráðlegt að skoða upplýsingar um einstaka staði fyrirfram og gera ráð fyrir auknum tíma við komu.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Verða rafmagns- eða hleðsluaðstæður til staðar?

Já. Hleðslustöðvar fyrir rafbíla eru í þéttbýli á Reykjanesi.

Á afskekktum stöðum og útsýnisstöðum er ekki hægt að gera ráð fyrir hleðsluaðstöðu og aðgengi að rafmagni er ekki tryggt utan þéttbýlis. Hleðslustöðvar geta einnig orðið mjög annasamar á meðan á almyrkvanum stendur.

Gestir á rafbílum eru hvattir til að skipuleggja sig vel.

Hlaðið bílinn áður en lagt er af stað, gerið ráð fyrir bið við hleðslustöðvar og treystið ekki á að hleðsluaðstaða sé við áfangastað.

Með því að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli er betra aðgengi að þjónustu, stuðningi og innviðum.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Hvar eru heilbrigðisþjónusta og sjúkrahús?

Heilbrigðisþjónusta er á Reykjanesi, þar á meðal heilsugæslur í lykilbyggðakjörnum og sjúkrahús í Reykjanesbæ.

Helstu heilbrigðisstaðir á meðan á almyrkvanum stendur eru:

  • Reykjanesbær — HSS
    Address: Skólavegur 6, 230 Keflavik
  • Reykjanesbær — Heilsugæslan Höfða
    Address: Aðalgata 60, 230 Keflavik

Ef um neyðartilvik er að ræða skal hringja strax í 112.

Gestir eru hvattir til að velja útsýnisstaði í eða nálægt þéttbýli þar sem aðgengi að heilbrigðisþjónustu og aðstoð er betra.

Mætið snemma, dveljið lengur og komið undirbúin.

Má fljúga dróna á meðan almyrkvanum stendur?

Vinsamlegast fljúgið ekki drónum á meðan á almyrkvanum stendur.

Drónar geta truflað dýralíf, skapað hávaða og haft áhrif á upplifun annarra gesta. Drónar eru sérstaklega óvinsælir meðal margra sem fylgjast með almyrkva, enda koma margir til að upplifa viðburðinn í ró og einbeitingu.

Við Látrabjarg og á öðrum friðlýstum svæðum getur drónaflug verið takmarkað eða háð leyfi viðeigandi yfirvalda. Ef ætlunin er að nota dróna á Íslandi þarf að kynna sér reglur fyrirfram og fylgja takmörkunum sem gilda á hverjum stað.

Fyrir almyrkvann er einfaldasta ráðleggingin þessi:

Geymið drónann og njótið viðburðarins af jörðu niðri.