Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Víða um land eru menningarmiðstöðvar.

Þar fara fram ýmsir listviðburðir og fræðsla fyrir alla aldurshópa.

Í stærri byggðalögum á Reykjanesi má finna menningarmiðstöðvar sem bjóða uppá fjölbreytta uppákomur og viðburði allt árið.

Rokksafn Íslands
Rokksafn Íslands er sýning um sögu popp- og rokktónlistar á Íslandi. Safnið er staðsett í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Á safninu er að finna tímalínu um sögu íslenskrar tónlistar á Íslandi allt frá árinu 1920 til dagsins í dag.  Á meðal þeirra muna sem eru að finna á safninu er trommusett Gunnars Jökuls Hákonarsonar sem var m.a. notað á meistaraverkinu Lifun með Trúbrot, kjól sem Emilíana Torrini klæddist í myndbandinu Jungle Drum, tréskúlptúr af reggí-hljómsveitinni Hjálmum, lúðrasveitarjakka sem Stuðmenn klæddust í myndinni Með allt á hreinu, kjól af Elly Vilhjálms, styttu af Rúnari Júlíussyni, flygil úr eigu Ragga Bjarna og þannig mætti lengi telja.
Hljómahöll
Hljómahöll er tónlistar-, menningar- og ráðstefnuhús í Reykjanesbæ. Í Hljómahöll er fullkomin aðstaða fyrir viðburðahald af öllum toga. Hægt er að leigja sali sem henta undir árshátíðir, brúðkaup, tónleika o.s.frv. Salirnir okkar eru Stapi og Berg. Í Hljómahöll er einnig veisluþjónusta sem leggur mikið upp úr faglegri og persónulegri þjónustu. Hið sögufræga félagsheimili Stapi er stærsti salurinn í Hljómahöll og býður upp á fjölbreytta möguleika til viðburðahalds. Salurinn getur tekið allt að 800 gesti á tónleikum, þar af 700 standandi á gólfi og 100 í sætum á svölum. Þegar haldnir eru dansleikir eykst gestafjöldinn upp í 897 manns, með því að framlengja salinn og opna inn í Merkines-salinn. Stapi býður einnig upp á 445 sæti í leikhúsuppröðun, þar af eru rúmlega 100 sæti staðsett á svölum. Ef salurinn ernotaður fyrir borðhald, þá getur hann tekið allt að 450 manns, og er þá einnig framlengdur yfir í Merkines-salinn til að auka plássið. Stapi er því tilvalinn fyrir stórar samkomur, hvort sem það eru fundir, ráðstefnur, tónleikar, árshátíðir eða veislur, þar semboðið er upp á sveigjanlega möguleika og góðan aðbúnað fyrir gesti. Salurinn Berg er nefndur í höfuðið á Hólmsbergi í Keflavík sem í daglegu tali er nefnt „Bergið“. Berg er kjörinn fyrir tónleika, fundi og ráðstefnur. Berg býr yfir fullkomnu og öflugu hljóðkerfi, skjávarpa og sýningartjaldi. Í salnum eru 127 sæti. Stólunum er raðað á bekki í sjö stighækkandi raðir.Stólarnir eru einstaklega þægilegir en þeir heita Magni og eru hannaðir af Valdimar Harðarsyni arkitekti.  Endilega sendið fyrirspurnir varðandi sali og salaleigu á info@hljomaholl.is
Víkingaheimar
Víkingaheimar í Reykjanesbæ er glæsilegt sýningahús sem hýsir nú fimm áhugaverðar sýningar þar á meðal víkingaskipið Íslending sem sigldi til Ameríku árið 2000. Húsnæðið er hannað af hinum margverðlaunaða arkitekt Guðmundi Jónssyni. Nútímaleg hönnun þess undirstrikar fegurð Íslendings.Aðgengi að safninu er góður fyrir fólki sem á erfitt með gang eða háð hjólastól/göngugrind.  Gjafavara, ráðstefnu- og móttökusalir fyrir öll tækifæri og útisvæði fyrir víkingahátíðir eru einnig til staðar. Opnunartími er 10 - 16 alla daga og hægt er að bóka morgunmat fyrir stærri hópa.  Sýningar: Örlög guðannaSýning um norræna goðafræði og goðsögur. Gesturinn er leiddur í gegnum þennan forna hugmyndaheim og goð og goðheimar birtast ljóslifandi á myndrænan og nýstárlegan hátt þar sem myndlist, frásögn og tónlist fléttast saman í eina heild. Sýningin er samin og unnin af viðurkenndum íslenskum samtímalistamönnum og norrænufræðingum sem þarna leiða saman hesta sína til að skapa glæsilegt og nútímalegt listaverk um fornan menningararf. Víkingar Norður-AtlantshafsinsSýning um siglingar og landnám norrænna manna og þátt þeirra í landafundum Norður-Ameríku. Sýningin var unnin í samstarfi við Smithsonian stofnunina í Bandaríkjunum. Víkingaskipið ÍslendingurSkipið er nákvæm eftirgerð af Gaukstaða skipinu, níundu aldar víkingaskipi og sigldi árið 2000 yfir Atlantshafið til að minnast ferðar Leifs Eiríkssonar til Nýja heimsins þúsund árum fyrr. Landnám á ÍslandiMerkar fornleifar af Suðurnesjum. Minjar um elstu byggð á Reykjanesi, nánar tiltekið frá Vogi í Höfnum og Hafurbjarnarstöðum. Söguslóðir á ÍslandiKynning á helstu söguslóðum Íslands unnin í samstarfi við Samtök um sögutengda ferðaþjónustu. Rúmlega 30 staðir, söfn, sýningar, minjar, hátíðir, mannvirki og slóðir ákveðinna sagna er kynnt hér. Nánari upplýsingar á www.vikingaheimar.is eða í síma 422-2000.
Byggðasafnið á Garðskaga
Byggðasafnið á Garðskaga er staðsett í miðri náttúruparadís þar sem fjölbreytt fuglalíf, náttúrufergurð og dýrarlíf skarta sínu fegursta. Safnið var fyrst opnað 1995 og hefur verið starfrækt síðan. Safnið er alhliða byggða og sjóminjasafn og er sérstaða safnsins einstakt vélasafn þess. 60 vélar eru á safninu sem eru allar uppgerðar af Guðna Ingimundarsyni í Garði, flestar eru þær gangfærar. Safnið hefur til sýnis ýmsa muni sem tengdust búskaparháttum til sjós og lands, elstu munir eru orðnir yfir eitthundrað ára gamlir. Fallegt safn af gömlum útvörpum og ýmsum tækjum og tólum sem notuð voru á heimilum á fyrri árum, skólastofa, skóvinnustofa og verslun Þorláks Benediktssonar svo fátt eitt sé nefnt. Stór hluti af safninu eru sjóminjar, ýmsir hlutir sem notaðir voru við fiskveiðar og til verkunar fisks á landi. Á safninu er sexæringur, níu metra langur bátur með Engeyjarlagi smíðaður 1887. Opnunartími: Safnið er opið kl. 10-17,  frá 1. maí - 30. sept.  Frá október til apríl er byggðasafnið opið fyrir hópa sem panta heimsóknir í síma 862 1909,  byggdasafn@sudurnesjabaer.is eða með skilaboðum á Facebook Byggðasafnið á Garðskaga.