Umferðarstýring og lokanir
Eins og staðan er í dag er áætlað að vera með einstefnu á:
- Vatnsleysustrandarveg (420), frá Vogum til austurs í átt að Reykjavík að Reykjanesbraut.
- Ósabotnaveg (45), frá Nesvegi í norður í átt að Suðurnesjabæ.
Verið er að skoða mjúka lokun (eftirlit) á Vigdísarvallavegi.
Kort af einstefnum og lokunum
Athugið að þessar lokanir og stýringar koma til með að vera endurskoðaðar. Skoðið aðstæður áður en lagt er af stað og skoðið upplýsingar um einstefnur og lokanir inn á vegagerdin.is og umferdin.is.