Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes er tilvalið svæði til að njóta stórbrotinnar náttúru og útivistar. Inn á milli leynast faldar perlur sem margir eiga eftir að uppgötva. Hér að neðan er listi af nokkrum áhugaverðum stöðum á Reykjanesi sem vert er að skoða. 

Karlinn
Karlinn (Karl) er um 50-60 metra hár klettur eða forn gígtappi sem stendur tignarlegur í hafinu úti fyrir Valahnúk þar sem sjávaraldan hefur rofið klettinn um áranna rás. Karlinn er vinsæll meðal ferðamanna og ljósmyndara enda er hann mikilfenglegur og sérstaklega þegar aldan skellur á með miklum ofsa. 
Stóra-Sandvík
Stór- og Litla- Sandvík eða Sandvíkur, sunnan Hafnabergs á Reykjanesi.  Þar er vinsæll áningarstaður ferðafólks á leið um utanvert Reykjanes. Sandfjara með háum melgresishólum handan við. Við Sandvík endar Hafnaberg með fallegum klettum sem eru hluti af sprungugjám. Sunnan við Sandvík er Stampahraun sem runnið er úr 7 km langri gígaröð sem gaus fyrir ca. 800 árum. Mjög sérkennilegir gígar af ýmsum stærðum og gerðum og með skrítnar myndanir í sumum. Sumarið 2006 var heimsfræg bíómynd tekin upp syðst við Sandvík, Flags of our fathers sem frægi leikarinn Clint Eastwood leikstýrði.
Brimketill
Brimketill er sérkennileg laug í sjávarborðinu vestast í Staðarbergi stutt frá Grindavík. Á sólríkum degi minnir grjótmyndunin helst á heitan pott. Brimketill og katlarnir í nágrenni hans urðu til vegna stöðugs núnings brims við hraunklettana. Þar hefur ytra álag smátt og smátt mótað bolla og katla í basalthraunið. Hafið hefur mikil áhrif á landmótun á Reykjanesi. Með því að fylgjast með brimi skella á klettunum í nágrenni Brimketils má sjá þann kraft sem býr í Norður-Atlantshafinu. Aldan vinnur á föstu berginu með því að þrýsta þétt saman lofti í rifum og sprungum. Við útsogið dregur sjórinn loftið með sér. Þá verður til undirþrýstingur. Þessi ferill brýtur bergið smám saman. Við bætist svo rof vegna bergbrota sem aldan skellir á sjávarkletta og laust grjót, og auk þess frostveðrun þegar vatn í glufum þenst út við að harðna, og jafnvel sandblástur.  Hraunið umhverfis Brimketil er gróft, sprungið og með háum úfnum jöðrum og yfirborði. Líklega hefur það runnið í Reykjaneseldum á árunum 1210-1240. Þjóðsaga ein segir frá nátttröllinu Oddnýju sem bjó í Háleyjabungu, rétt vestan við Brimketil, ásamt Hróari manni sínum og syni þeirra Sölva. Eina nóttina fór hún út að Ræningjaskeri rétt austan við Brimketil til að ná í hvalhræ sem hafði rekið að landi. Í bakaleiðinni hvíldi hún sig og baðaði í Brimkatli. Þegar hún hélt loks heim á leið komst hún ekki langt þar sem sólin kom upp um það leyti. Varð hún því að steini og sást þarna lengi sem hár bergdrangur, allt þar til sjórinn braut hann smám saman niður. Brimketill hefur því einnig verið nefndur Oddnýjarlaug í höfuð á nátttröllinu. Á dögunum var lokið við að byggja áfanga 2 við Brimketil, verkefni sem hófst árið 2015 er nú lokið. Nýja viðbótin við útsýnispallinn veitir ferðamönnum betra útsýni yfir sjálfa Oddnýjarlaug sem einnig nefnist Brimketill. Samhliða áfanga 2 var unnið að því að bæta aðgengi og öryggi umtalsvert sem og að gert var við skemmdir sem urðu á pallinum eftir veðurofsa vetrarins. Verkið var styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og verkefnastjórn var í höndum Reykjanes Geopark og Grindavíkurbæjar. Landmótun og Efla sáu um hönnun og ÍAV smíðaði.  Öryggisupplýsingar! Ekkert eftirlit er á svæðinu. Gestir eru a eigin ábyrgð. Öldurnar geta verið ófyrirsjánlegar og óvæntar. Sjávarstraumar eru einstaklega sterkir. Sterkar vindhviður geta verið hættulegar og ófyrirsjáanlegar. Ef þú ert á ferð með börn, skildu þau aldrei við þig. Lífshættulegt getur verið að fara í sjóinn. Ferðastu um Ísland á öruggan máta. SafeTravel.is
Krýsuvíkurberg
Sjávarklettar með mjög fjölskrúðugu fuglalíf. Klettarnir erum 40 m háir og 15 km breiðir. Bergið er afar litríkt og fallegasti hluti þess nefnist Rauðaskriða. Strákar er hryggur sem er úr móbergi mjög áhugaverður á að líta.   Staðsetning: Hælsvík, beygt af vegi 427
Brúin milli heimsálfa
Brú á Reykjanesi á plötuskilum milli Evrópu og Ameríku.  Samkvæmt jarðfræðikenningum þá þrýstast Evrasíu- og Norður- Ameríkuflekarnir hvor frá öðrum á Reykjanesi. Plötuskilin afmarkast af gosreinum, gjám og gígaröðum sem liggja frá Reykjanesi og norðaustur um land. Segja má að Reykjaneshryggurinn (Mið-Atlantshafshryggurinn) "gangi" á land á Reykjanesi en með honum liggja skil þessara tveggja fleka. Ísland skiptist þannig milli tveggja jarðskorpufleka. Austurhluti landsins tilheyrir svonefndum Evrasíufleka og vesturhlutinn svonefndum Norður-Ameríkufleka. Skilin milli flekanna birtast okkur ýmist sem opnar sprungur og gjár eða sem sem gígaraðir. Byggð hefur verið brú á milli "plötuskilanna" upp af Sandvík á Reykjanesi þar gefst kostur á að upplifa það að ganga á milli heimsálfa (jarðfræðilega séð) Fólki að kostnaðarlausu. Hægt er að fá viðurkenningarskjal þess efnis að viðkomandi "hafi gengið á milli heimsálfa" gegn vægu gjaldi á upplýsingamiðstöð Reykjaness og gestastofu Reykjanes jarðvangs sem staðsett eru í Duushúsum í Reykjanesbæ.
Valahnúkamöl
Hryggur með mikið af ringlaga hnullungum. Varð til með miklum stormum, háum öldum og brimi. Staðsetning: Nálægt Valahnúk í noðri og Skálafelli í suðri. Vegur 425
Festarfjall
Eldfjall um 190 metra hátt. Meðfram því er bergveggur en sagan segir að það sé festi tröllskessu. Staðsetning: Fyrir neðan Suðurstrandaveg 427 fyrir ofan Hraunsvík. 
Sveifluháls
Hraunbreiða fyrir vestan Krýsuvík suður af Núpshlíðarhálsi ( Vesturháls). Vestasti hluti þeirrar hraunbreiðu, sem á uppdráttum er nefnt Ögmundarhraun er þó af öðrum toga spunnið, það nær vestur undir Ísólfsskála. Ögmundarhraun er runnið frá norðurhluta gígaraðar austan í Núpshlíðarhálsi og hefur meginhraunflóðið fallið milli Latsfjalls og Krýsuvíkur-Mælifells og allt suður í sjó og langleiðina austur undir Krýsuvíkurberg. Sunnan til í hrauninu er 2 hólmar sem standa upp úr og er annar nefndur Óbrynnishólmi en hinn, sá austari Húshólmi. Í þeim síðar nefnda eru bæjarrústir sem taldar eru vera með þeim elstu á landinu eða frá landnámi og mótar vel fyrir þeim eins og sést á loftmyndinni hér. Er talið að hér séu rústir af elstu kirkju á Íslandi.
Stóra-Eldborg við Geitahlíð
Eldborg er langstærstur fimm gíga sem liggja í gossprungu í hlíðum Geitafells, og oft kallaður Stóra-Eldborg. Hann er brattur og gerður úr gjalli og kleprum. Austur úr honum liggur myndarlegur hraunfarvegur. Bæði Stóra-Eldborg og Litla-Eldborg eru friðlýstir gjallgígar. Hægt er að ganga upp að Stóru-Eldborg, sem margir telja fegursta gíg Suðvesturlands, og þaðan niður í Litlu-Eldborg þar sem hægt er að sjá ofan í gíginn.  Frá Grindavík er Stóra-Eldborg fyrir ofan Suðurstrandaveg (427). Sumarið 2021 var lokið við að lagfæra stíga, bæta merkingar og sett var upp bílastæði við gamla Suðurstrandarveg. Í sumar (2022) verður unnið að því að setja upp ný upplýsingaskilti.
Keilir
Keilir er einkennisfjall Reykjanesskaga, 379 metra hátt keilulaga móbergsfjall tengt við lágan hrygg sem nefnist Keilisbörn. Gosmyndunin kom undan ísaldarjökli. Keilir er vinsæll til fjallgöngu og útsýni mjög gott af toppi hans.
Kleifarvatn
Stöðuvatn á miðjum Reykjanesskaga milli Sveifluháls og Vatnshlíðar. Kleifarvatn er þriðja stærsta stöðuvatn á Suðurlandi,um 10 km2 og eitt af dýpstu vötnum landsins 97m. Það hefur lítilsháttar aðrennsli en ekkert frárennsli nema gljúpan jarðveg. Töluverður jarðhiti er syðst í vatninu og einnig út af Innri stapa vestan við það. Fyrir einhverjum árum síðan voru silungsseiði látin í vatnið og dafnar fiskurinn ágætlega í því. Munnmæli herma a skrímsli hafi haldið sig við Kleifarvatn og sést þar endrum og eins. Á það að hafa verið ormskrímsli, svart að lit og á við meðal stórhveli að stærð.
Lambafellsgjá
Gjá hjá Lambafelli sem er nokkuð víð og getur verið 50 metra djúp. Hægt er að ganga eftir gjánni þar að segja yfir sumartímann. Bólstraberg má finna í veggjum hennar. Staðsetning: Keyrt er að Höskuldsvöllum og beygt þaðan niður að Trölladyngju. Bílastæði er við Eldborg og þaðan er gengið austan hennar að Lambafelli.
Reykjanesviti
Tignarlegur viti stendur á Suðvesturodda Reykjaness og hefur staðið á Bæjarfelli þar frá árinu 1908.  Rætt var fyrst um að byggja vita á Reykjanesi 1875 en ekki til peningar fyrir því. Stuttu seinna var vitagjald tekið upp til að safna fé til að byggja vita. Öll skip nema fiskiskip við allar hafnir landsins áttu að greiða 15 aura fyrir hverja lest sem úr skipinu væri tekin. Íslendingar ræddu við dani um kosti þess að hafa ljósvita þar sem tryggingafélög vildu ekki ábyrgjast skip sem sigldu til Íslands nema að skipaeigendur greiddu miklu hærri iðgjald. Að enginn skip komu til Íslands var mjög slæmt fyrir íbúana. Loks samþykktu danir að fjármagna ljóshúsið og tækin í ljósið en Íslendingar sæju um bygginguna sjálfa, efniskostnað og launakostnað starfsmanna.  Danskur verkfræðingur Rothe að nafni sá um að hanna bygginguna og skipuleggja verkið. Tafðist verkið af ýmsum ástæðum en 1. desember 1878 var fyrsti ljósviti Íslands formlega vígður á Valahnúk og tekinn í notkun. Það fór ekki betur en svo að hann skemmdist í jarðskjálfta 9 árum síðar og rústirnar sprengdar í apríl 1908.  Fyrsti vitavörðurinn var Arnbjörn Ólafsson og gegndi hann starfinu til 1. ágúst 1884.   
Snorrastaðatjarnir/Háibjalli
Vinsælt útivistarsvæði sem og tjarnir þar sem er kjörið að skoða fugla. Nálægt þessi svæði er Háibjalli 10 m hár klettur. Eru báðir á náttúruminjaskrá. Staðsetning: Vegur 43 rétt hjá Seltjörn og Sólbrekkuskógi.
Sogin
Sérkennilegt háhitasvæði sunnan við Trölladyngju og Grænudyngju.  Svæðið er allt ummyndað af jarðhita og gefur hlíðunum sem eru myndaðar af Sogaselslæknum fjölbreytta litaskrúð.   Staðsetning: Á sumrin er hægt að keyra Vigdísarvallaveg 428 en á veturnar er hægt að ganga frá Krýsuvíkurvegi 42.  
Staðarborg
Fjárborg á Strandarheiði. Staðsett 2-3 km frá Kálfatjörn, í stefnu þaðan og á Dyngju. Hún er hringlaga, hlaðin eingöngu úr grjóti og er hverjum steini hagrætt í hleðslunni af hinni mestu snilld.  Vegghæðin er um 2 m og þvermál að innan um 8 m.  Ummál hringsins að utanverðu er um 35 m.  Gólfið inni í borginni er grasi gróið og rennislétt. Ekki er vitað hvenær borgin var hlaðin en menn telja hana nokkur hundruð ára gamla.  Munnmæli herma að maður að nafni Guðmundur hafi hlaðið borgina fyrir Kálfatjarnarprest.  Guðmundur vandaði vel til verka, safnaði grjóti saman úr nágrenninu, bar það saman í raðir og gat einnig valið þá hleðslusteina sem saman áttu.  Ætlun hans var að hlaða borgina í topp.  En er hann var nýbyrjaður að draga veggina samað að ofanverðu kom húsbóndi hans í heimsókn.  Sá hann þá strax í hendi sér að fullhlaðin yrði borgin hærri en kirkjuturninn á Kálfatjarnarkirkju og tilkomumeiri í alla staði.  Reiddist hann Guðmundi og lagði brátt bann við fyrirætlan hans.  En þá fauk í Guðmund svo hann hljóp frá verkinu eins og það var og hefur ekki verið hreyft við borginni síðan.  Staðarborg var friðlýst sem forminjar árið 1951 
Reykjanes Unesco Global Geopark
Reykjanesskaginn er í dag geopark og hluti af verndaráætlun Unesco eða Unesco Global Geopark. Reykjanes Geopark fékk formlega vottun sem geopark á þrettándu haustráðstefnu European Geoparks Network í Rokua Geopark í Finnlandi í september 2015. Reykjanes Geopark er annað svæðið á Íslandi til að hljóta þessa vottun er Katla Geopark hlaut hana árið 2011. Reykjanes Geopark er jafnframt 66. svæðið í Evrópu sem hlýtur þessa vottun. Í lok árs 2015 var alþjóðlega prógramm geoparka samþykkt sem 3ðja áætlun Unesco og er því Reykjanes Geopark hluti af því. Enska orðið geopark eða geo er komið af orðinu Gaia, sem er ein af grísku guðunum og þýðir móðir jörð. Hvað er merkilegt við Reykjanes? Mið-Atlantshafhryggurinn gengur á land yst á Reykjanesskaganum og liggur gegnum landið frá suðvestri til norðausturs. Jarðsaga Reykjanesskagans er nokkuð vel þekkt og má rekja hana nokkur hundruð þúsund ár aftur í tímann. Flest jarðlög á svæðinu eru yngri en 100 þúsund ára. Á þessum tíma hefur loftslag verið breytilegt og óstöðugt. Á vissum tímabilum var Ísland hulið mikilli íshellu og er þá talað um jökulskeið, en á milli var hlýrra loftslag líkt og nú, og er þá talað um hlýskeið. Á jökulskeiðunum áttu sér stað gos undir jökli. Þegar jökullinn hopaði stóðu eftir móbergsfjöll. Á hlýskeiðum runnu hraun frá gosstöðvum undan halla, oft til sjávar.Reykjanes er á flekaskilum, þ.e. hluti Reykjanesskagans tilheyrir Evrasíuflekanum á meðan hinn hlutinn tilheyrir Norður Ameríkuflekanum. Talið er að um tólf hraun hafi runnið á Reykjanesi frá því að land byggðist á 9. öld eða að meðaltali eitt hraun á öld. Hraun sem rennur á Reykjanesi er aðallega sprungugos, þ.e. mikið magn hrauns kemur upp úr gígum á sprungum en lítið af ösku. Af hverju Geopark? Hvergi í heiminum má sjá flekaskilin ganga á land með jafn áþreyfanlegum hætti og á Reykjanesi. Í Reykjanes jarðvangi er að finna margar merkilegar jarðminjar og eru sumar þeirra einstakar á heimsvísu. Þar er að finna allar tegundir elstöðva sem gosið hafa á Íslandi, m.a. fjögur gosbelti og samanstendur hvert þeirra af hundruðum opinna sprungna, gígaraðir, dyngjur og skjaldlaga bungur. Reykjanes Geopark hefur listað upp 55 staði sem tengjast flekaskilunum og sögu Reykjanesskagans og eru merktir sérstaklega sem "geosites" eða áhugaverðir staðir innan Reykjanes Geopark. Frekari upplýsingar um Reykjanes Geopark er hægt að finna inn á heimasíðu hans: www.reykjanesgeopark.is.
Gunnuhver
Kröftugt hverasvæði á Reykjanesi. Rétt austan við Reykjanesvita er mikið jarðhitasvæði, eitt af mörgum á Reykjanesi. Gunnuhver er þekktasti hverinn þar en hann mun draga nafn sitt af Guðrúnu nokkurri sem gekk aftur og olli miklum usla á svæðinu þar til að Eiríkur Magnússon, prestur í Vogsósum, tókst að koma draugnum fyrir með því að senda hann í hverinn Á árinu 2006 hljóp mikill hamagangur í svæðið sem stækkaði mikið og eyðilagði akveg og göngupalla. Í endaðan júní 2010 hafa verið teknir í notkun nýjir göngupallar og útsýnispallar þar sem er aðgengi fyrir alla.
Háleyjabunga
Háleyjarbunga er lítil og flöt hraundyngja sem myndaðist eftir flæðigos. Dyngjan er með stórum toppgýg, 20-25 m djúpur. Háleyjarbunga er um 9.000 ára gömul eða eldri, og úr frumstæðri basalttegund úr möttli sem nefnist pikrít. Grænir ólivínkristallar eru áberandi. Staðsetning: Nálægt Reykjanesvita á Reykjanestá. Merkt gönguleið liggur að Háleyjarbungu frá Gunnuhver.   Háleyjarbunga er áfangastaður (e. geosite) í Reykjanes Unesco Global Geopark.
Húshólmi
Bæjarrústir og túngarðar að hálfu undir Ögmundarhrauni. Húshólmi er neðanlega í hrauninu nálægt Hælsvík.  Bæjarrústirnar eru mjög fornar og auðvelt er að ganga að þessum rústum.  Sérfræðingar eru sammála um að hér séu elstu minjar sem hafa fundist um landnám á Íslandi, taldnar vera eldri en 871. Svæðið er vinsælt útivistarsvæði. Í kringum það liggur bílfær vegur sem gaman er að ganga eða hjóla. Þá er hann einnig mikið nýttur af hestamönnum.
Katlahraun
Katlahraun rann í sjó fram fyrir um 2.000 árum og hlóðst upp við ströndina vegna fyrirstöðu. Stór, hringlaga hrauntjörn myndaðist en tæmdist eftir að hlutar hennar höfðu storknað. Eftir standa margvíslegar, fallegar og óvenjulegar hraunmyndanir. Staðsetning: Katlahraun er vestan Selatanga og liggur vegur fyrir fjórhjóladrifnabíla að Ketli og Selatöngum. Katlahraun er áfangastaður (e. geosite) í Reykjanes Unesco Global Geopark.
Grænadyngja og Trölladyngja
Grænadyngja og Trölladyngja eru brött móbergsfjöll vestan við Sogin. Þau eru umlukt ungum gossprungum, háhitasvæðum og mikilli litadýrð. Apalhraun rann frá gosstöðvum suður til sjávar við Reykjanesbraut og myndaði meðal annars Afstapahraun. Fjórir kílómetrar eftir vegi 41 í austur frá Keili.
Djúpavatn, Spákonuvatn og Grænavatn
Þrjú stöðvötn í móbergshryggjunum Vesturhálsi og Sveifluhálsi, að mestu með grunnvatni. Djúpavatn er við samnefnda ökuleið, að hluta eldgígur. Spákonuvatn við Sogin er sprengigígur, eins og Grænavatn við göngustíg yfir Sveifluháls. 
Eldvörp
Eldvörp eru um tíu kílómetra löng gígaröð í skástígum hlutum, ásamt 20 ferkílómetra hrauni sem flæddi í gos- og rekhrinunni Reykjaneseldum á árabilinu 1210 til 1240. Við miðbik gígaraðarinnar er jarðhiti og stök rannsóknarborhola. Áður fyrr bökuðu grindvískar konur brauð í Eldvörpum og liggur svokallaður Brauðstígur þangað frá Grindavík. Mannvistarleifar má finna hér og þar í hrauninu.
Vitarnir á Garðskaga
Fyrstu  heimildir um ljósvita á Garðskaga er frá því 1847, en þá var hlaðin varða til leiðarvísis sjófarendum. Varðan var hlaðin úr grjóti og upp úr henni stóð járnstöng. Í blöðunum frá þeim tíma segir, að í ágústmánuði 1847 hafi komið með póstskipinu smíðuð járnvarða, sem setja eigi upp á Garðskaga, til leiðarvísis skipum sem sigldi inn Faxaflóa. Gert er ráð fyrir, að varðan með grjótstöpli, sem undir hana verði hlaðinn, verði 15 álna há (3,7m). Þetta var leiðarmerki um daga en ekki viti. Árið 1897 var svo byggður ljósviti á Garðskagatá. Það var ferstrengd bygging úr steinsteypu, 12.5 metrar á hæð og 3,25 metrar á hverja hlið. Áfast við hann var varðhús, þar sem vitavörðurinn hélt til um nætur. Umhverfis vitan var pallur, hlaðinn úr höggnu grjóti, um 3 metrar á hæð. Í vitanum voru sett mjög vönduð ljósatæki, sem var olíulampi. Ljósbrjótur magnaði ljósið og sneri lóðaklukka ljósbrjótnum. Hana þurfti að vinda upp á fjögra klukkustunda fresti og því talið nauðsynlegt, að vitavörðurinn dveldist í varðhúsinu um nætur. Á síðari árum þótti ekki hættulaust að dveljast í vitanum þegar mikið brimaði og var þá vitans gætt frá vitavarðahúsinu. Nýr viti var svo byggður á Garðskaga árið 1944 og var ein höfuðástæða þess, að sjór hafði gengið mikið á landið frá því að gamli vitinn var byggður. Nýji vitinn er sívalur turn úr steinsteypu, 28 m. á hæð með ljóshúsi. Garðskagavitin mun vera hæsti viti á landinu, það er að segja, byggingin sjálf. Ljóstæki gamla vitans voru flutt yfir í nýja vitann, en fljótlega kom þó rafljós í stað olíuljóssins, í fyrstu frá vindrafstöð, en síðar frá Sogsvirkjuninni og var ljósmagn vitans aukið um leið. Árið 1961 var vitinn búinn sænskum ljóstækjum og var hann með sömu ljósmerkjum og sá gamli (upplýsingar um ljósmerki). Radiomiðstöð var tekin í notkun á Garðskaga árið 1952 fyrir atbeina Slysavarnafélags Íslands og fjórum árum síðar var sú stöð leyst af hólmi með ljósradiomiðunarstöð, sem er miklu langdrægari og fullkomnari
Hvalsneskirkja
Hvalsneskirkja, vígð 1887 staðsett á vestanverðu Reykjanesi, kirkja Sandgerðinga.Ketill Ketilsson stórbóndi í Kotvogi, þáverandi eigandi Hvalsnestorfunnar kostaði kirkjubygginguna. Hvalsneskirkja er byggð úr tillhöggnum steini og var grjótið sótt í klappir í nágrenninu. Um steinsmíði sá Magnús Magnússon og Stefán Egilsson, um tréverk sá Magnús Ólafsson. Allur stórviður hússins var fenginn úr fjörunum í nágrenninu, m.a. súlurnar. Viðamiklar viðgerðir fóru fram árið 1945 undir umsjón Húsameistara ríkisins.Kirkjan er enn starfandi í dag og rúmar 100 manns.  Kirkjan er friðuð Altaristaflan er eftirgerð af Dómkirkjutöflunni máluð af Sigurði Guðmundssyni árið 1886 og sýnir hún upprisuna. Einn merkasti gripur kirkjunnar er legsteinn yfir Steinunni Hallgrímsdóttur sem dó á fjórða ári (1649). Hún var dóttir Hallgríms Péturssonar (1614-1674) mesta sálmaskálds Íslendinga sem þjónaði þá sem prestur í Hvalsnessókn, hans kona var Guðríður Símonardóttir. Hallgrímur Pétursson þjónaði á Hvalsnesi fyrstu prestskaparár sín 1644-1651. Hella þessi var lengi týnd en fannst 1964 þar sem hún hafði verið notuð í stéttina framan við kirkjuna. Kirkja hefur liklega verið á Hvalsnesi lengi, hennar er fyrst gerið í kirknaskrá Páls biskups frá 1200.Hvalsnes var fyrrum prestssetur og útkirkjur í Kirkjuvogi og Innri-Njarðvík. Hvalsnesprestakall var lagt niður 1811 og Hvalsnes- og Kirkjuvogskirkjur lagðar til Útskála. Íbúarnir voru mjög ósáttir við það og var ný kirkja byggð 1820 og var hún timburkirkja. Núverandi kirkja er fyrsta kirkjan sem stendur utan kirkjugarðs. Í kaþólsku tengdust margir dýrlingar kirkjunni, María guðsmóðir, Ólafur helgi, heilög Katrín, Kristur, allir heilagir og hinn helgi kross. 
Brimketill
Brimketill er sérkennileg laug í sjávarborðinu vestast í Staðarbergi stutt frá Grindavík. Á sólríkum degi minnir grjótmyndunin helst á heitan pott. Brimketill og katlarnir í nágrenni hans urðu til vegna stöðugs núnings brims við hraunklettana. Þar hefur ytra álag smátt og smátt mótað bolla og katla í basalthraunið. Hafið hefur mikil áhrif á landmótun á Reykjanesi. Með því að fylgjast með brimi skella á klettunum í nágrenni Brimketils má sjá þann kraft sem býr í Norður-Atlantshafinu. Aldan vinnur á föstu berginu með því að þrýsta þétt saman lofti í rifum og sprungum. Við útsogið dregur sjórinn loftið með sér. Þá verður til undirþrýstingur. Þessi ferill brýtur bergið smám saman. Við bætist svo rof vegna bergbrota sem aldan skellir á sjávarkletta og laust grjót, og auk þess frostveðrun þegar vatn í glufum þenst út við að harðna, og jafnvel sandblástur.  Hraunið umhverfis Brimketil er gróft, sprungið og með háum úfnum jöðrum og yfirborði. Líklega hefur það runnið í Reykjaneseldum á árunum 1210-1240. Þjóðsaga ein segir frá nátttröllinu Oddnýju sem bjó í Háleyjabungu, rétt vestan við Brimketil, ásamt Hróari manni sínum og syni þeirra Sölva. Eina nóttina fór hún út að Ræningjaskeri rétt austan við Brimketil til að ná í hvalhræ sem hafði rekið að landi. Í bakaleiðinni hvíldi hún sig og baðaði í Brimkatli. Þegar hún hélt loks heim á leið komst hún ekki langt þar sem sólin kom upp um það leyti. Varð hún því að steini og sást þarna lengi sem hár bergdrangur, allt þar til sjórinn braut hann smám saman niður. Brimketill hefur því einnig verið nefndur Oddnýjarlaug í höfuð á nátttröllinu. Á dögunum var lokið við að byggja áfanga 2 við Brimketil, verkefni sem hófst árið 2015 er nú lokið. Nýja viðbótin við útsýnispallinn veitir ferðamönnum betra útsýni yfir sjálfa Oddnýjarlaug sem einnig nefnist Brimketill. Samhliða áfanga 2 var unnið að því að bæta aðgengi og öryggi umtalsvert sem og að gert var við skemmdir sem urðu á pallinum eftir veðurofsa vetrarins. Verkið var styrkt af Framkvæmdasjóði ferðamannastaða og verkefnastjórn var í höndum Reykjanes Geopark og Grindavíkurbæjar. Landmótun og Efla sáu um hönnun og ÍAV smíðaði.  Öryggisupplýsingar! Ekkert eftirlit er á svæðinu. Gestir eru a eigin ábyrgð. Öldurnar geta verið ófyrirsjánlegar og óvæntar. Sjávarstraumar eru einstaklega sterkir. Sterkar vindhviður geta verið hættulegar og ófyrirsjáanlegar. Ef þú ert á ferð með börn, skildu þau aldrei við þig. Lífshættulegt getur verið að fara í sjóinn. Ferðastu um Ísland á öruggan máta. SafeTravel.is
Seltún
Hverir á háhitasvæði sem eru innan Reykjanes Fólkvangs. Frábært tækifæri til rannsókna þar sem mikið er af leir, brennisteini og öðrum efnum sem gefa staðnum litríkt yfirbragð. Bílastæði við Seltún er búið að útbúa nýtt þjónustu- og salernishús eins eru góðir göngustígar um hverasvæðið. Staðsetning: Vegur 42, bílastæði, rétt við Kleifarvatn.