Visit Reykjanes á World Travel Market 2026 í London
WTM er ein stærsta fagsýning ferðaþjónustunnar í heiminum og samkomustaður ferðaþjónustuaðila, kaupenda og samstarfsaðila frá öllum heimshornum. Að þessu sinni tóku 29 íslensk ferðaþjónustufyrirtæki og fjórar markaðsstofur landshlutanna þátt á íslenska sýningarsvæðinu.
Reykjanes hluti af sameiginlegri kynningu Íslands
Þátttaka Visit Reykjanes á WTM er liður í að auka sýnileika svæðisins á alþjóðlegum vettvangi og styðja við markaðsstarf ferðaþjónustunnar á Reykjanesi. Sýningin er jafnframt góður vettvangur til að rækta tengsl við samstarfsaðila og fylgjast með áherslum og þróun á helstu mörkuðum.
Meðal samstarfsaðila Visit Reykjanes sem voru með fundarborð á íslenska básnum voru Bláa Lónið, Icelandia, Your Friend in Reykjavík og Blue Car Rental. Fulltrúar þeirra hittu þar kaupendur og samstarfsaðila og kynntu þjónustu sína.
Mikið líf var á íslenska sýningarsvæðinu þar sem viðskiptafundir, kynningar og samtöl fóru fram alla þrjá dagana. Sameiginleg þátttaka undir merkjum Visit Iceland gefur tækifæri til að sýna fjölbreytni landsins og vekja athygli á því sem hver landshluti hefur upp á að bjóða.
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sendiherra Íslands í Bretlandi, heimsótti íslenska básinn á miðvikudeginum og ræddi við þátttakendur og gesti.
Vellíðan og íslensk náttúra í forgrunni
Sérstök áhersla var lögð á vellíðan og tengsl hennar við íslenska náttúru, menningu og daglegt líf. Sú áhersla fellur vel að Reykjanesi, þar sem jarðhiti, baðmenning, útivist og nálægð við kraftmikla náttúru eru stór hluti af upplifun gesta.
Ný neytendaherferð Visit Iceland, AI Knittakers, var einnig kynnt á sýningarsvæðinu. Þar fær íslenskt prjónafólk það hlutverk að sitja fjarfundi fyrir aðra á meðan þeir nýta tímann til að upplifa Ísland. Reykjanes á sinn fulltrúa í herferðinni, sem tengir fólk og staði við kynningu landsins með skemmtilegum hætti.