Fara í efni

Eða prófaðu að leita eftir flokki og/eða staðsetningu

Reykjanes kynnt á AECO ráðstefnunni í Ósló

Reykjanes vakti mikinn áhuga meðal gesta á AECO ráðstefnunni í Ósló, þar sem við kynntum svæðið sem áfangastað fyrir skemmtiferðaskip. Góð samtöl sköpuðust um tækifæri á svæðinu og þátttakan gaf færi á að efla tengsl við aðila í greininni.

Góð samtöl og áhugi á svæðinu

Markaðsstofa Reykjaness var með sýningarbás á ráðstefnunni þar sem gestir gátu kynnt sér fjölbreytta náttúru, menningu og afþreyingu á Reykjanesi. Mikill áhugi var á svæðinu og góð samtöl áttu sér stað um mögulegar heimsóknir skemmtiferðaskipa og frekara samstarf.

Við buðum gestum á básnum súkkulaði frá Urtu sem sló í gegn og gaf skemmtilegt tilefni til samtals. Að kynna vörur frá svæðinu er mikilvægur hluti af því að sýna hvað Reykjanes hefur upp á að bjóða og vekja áhuga á handverki og framleiðslu heimafólks.

Tækifæri fyrir framleiðendur á svæðinu

Áhersla á vörur úr heimabyggð tengist vel verkefni AECO, Made in the Arctic, sem tengir staðbundna framleiðendur við leiðangursskipafélög og gesti þeirra. Markmiðið er að auka verðmætasköpun í nærsamfélögum og auðga upplifun gesta með vörum sem tengjast menningu og sérkennum svæðanna.

Framleiðendur og verslanir sem uppfylla skilyrði verkefnisins geta skráð vörur sínar á vefinn, meðal annars handverk, mat- og drykkjarvörur, minjagripi og snyrtivörur. Þar geta falist áhugaverð tækifæri fyrir framleiðendur á Reykjanesi til að auka sýnileika sinn og ná til nýrra viðskiptavina.

Íslenskir aðilar á ráðstefnunni

Markaðsstofa Norðurlands var einnig með sýningarbás og fulltrúar Cruise Iceland sóttu ráðstefnuna. Meðal ráðstefnugesta voru jafnframt Halldóra G. Jónsdóttir, sviðsstjóri menningar- og þjónustusviðs Reykjanesbæjar, og Ludvig Böss frá Nordic Port Group, sem vinnur að verkefni í samstarfi við höfnina í Keflavík.

Ábyrg þróun og samstarf við nærsamfélög

Meðal áhersluefna ráðstefnunnar voru ábyrg þróun skemmtiferðaskipaferða og samstarf við nærsamfélög. Rætt var um mikilvægi samstarfs skipafélaga, hafna, sveitarfélaga og ferðaþjónustuaðila svo heimsóknir skipanna skili ávinningi fyrir samfélögin og taki mið af náttúru og innviðum hvers staðar.

AECO eru samtök leiðangursskipafélaga á norðurslóðum og annarra aðila sem tengjast greininni. Samtökin leggja áherslu á að ferðirnar skili ávinningi til svæðanna sem heimsótt eru, með vernd náttúru og menningar, hagsmuni nærsamfélaga og öryggi að leiðarljósi.