ReThink – samstarfsverkefni um nærandi ferðaþjónustu á Norðurslóðum
Markaðsstofa Reykjaness tekur þátt í samstarfsverkefninu ReThink, sem er klasaverkefni styrkt af Interreg Northern Periphery and Arctic Programme (NPA). Verkefnið byggir á fyrri verkefnum á sviði nærandi ferðaþjónustu, REGGAE og REGENERATE, og sameinar jafnframt þekkingu og reynslu úr öðrum verkefnum og þróunarvinnu á Norðurlöndum og á Norðurslóðum.
Markmið verkefnisins er að safna og þróa áfram hagnýt verkfæri, stefnumótun og samstarf sem styður við uppbyggingu nærandi og sjálfbærrar ferðaþjónustu til framtíðar. Verkefnið leggur áherslu á að styrkja samstarf milli áfangastaða á Norðurlöndunum, stuðningskerfis ferðaþjónustunnar og annarra hagaðila í Finnlandi, Svíþjóð og á Íslandi.
Markmið verkefnisins
- Að safna saman og þróa áfram niðurstöður fyrri verkefna á sviði nærandi ferðaþjónustu.
- Að vinna með niðurstöður verkefna og færa yfir í hagnýt verkfæri og efni fyrir áfangastaðastofur (DMO), sveitarfélög og aðra hagaðila.
- Að þróa sameiginlega stefnumótun sem styður við langtímaþróun nærandi ferðaþjónustu.
- Að efla alþjóðlegt samstarf og tengslamyndun milli svæða og verkefna.
- Að samþætta sjálfbærni, jafnrétti, seiglu og nærandi hugsun inn í þróun ferðaþjónustu framtíðarinnar.
- Að auka sýnileika og þekkingu á nærandi ferðaþjónustu með markvissri miðlun verkefnisins.
Helstu verkþættir
Söfnun þekkingar og verkefna
Safnað verður saman niðurstöðum, verkfærum og efni úr fyrri verkefnum og öðrum verkefnum tengdum nærandi ferðaþjónustu á Norðurslóðum og Norðurlöndum. Markmiðið er að byggja upp sameiginlegan þekkingargrunn og greina tækifæri og þarfir til frekari þróunar.
Samstarf og tengslamyndun
Verkefnið mun leiða saman verkefnaaðila, tengda samstarfsaðila og aðra hagaðila í vinnustofum og fundum þar sem áhersla verður lögð á stefnumótun, miðlun reynslu og þróun verkfæra fyrir nærandi náttúruferðaþjónustu.
Sérstök áhersla verður lögð á að þróa verkfærakistu fyrir áfangastaðastofur og aðra sem vinna að þróun ferðaþjónustu, auk þess að styrkja alþjóðlegt samstarfsnet á sviði nærandi ferðaþjónustu.
Miðlun og kynning
Samstarfsaðilar í verkefninu munu miðla upplýsingum um framgang, niðurstöður, aðferðir og góð dæmi tengd nærandi ferðaþjónustu með það að markmiði að efla skilning og sýnileika málaflokksins bæði innan svæðanna og á alþjóðavettvangi.
Um verkefnið
ReThink er samstarfsverkefni aðila frá Íslandi, Finnlandi og Svíþjóð og stendur til mars 2027. Verkefnið byggir á þeirri sýn að ferðaþjónusta geti haft jákvæð áhrif á samfélög, náttúru og gesti með því að leggja áherslu á nærandi nálgun, samstarf og langtímahugsun í þróun áfangastaða.
Hægt er að fylgjast með fréttum og framgangi verkefnisins á meðfylgjandi hlekkjum.
Heimasíða verkefnisins: https://www.interreg-npa.eu/projects/rethink/
LinkedIn:
Tengiliður verkefnisins
Þuríður Aradóttir Braun, thura@visitreykjanes.is