Fara í efni
Fagradalsfjall. Ljósmynd: Þráinn Kolbeinsson

Áfangastaðaáætlun Reykjaness komin á eigin vef

Markaðsstofa Reykjaness hefur opnað nýtt vefsvæði fyrir Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027. Þar er á einum stað að finna áætlunina sjálfa, áherslur og aðgerðir, uppbyggingarverkefni á svæðinu og fróðleik um þróun ferðaþjónustu á Reykjanesi.

Safnahelgi á Suðurnesjum 17.–18. október

Safnahelgi á Suðurnesjum fer fram dagana 17.–18. október með fjölbreyttri dagskrá fyrir alla fjölskylduna. Frítt er inn á öll söfn og viðburði sem taka þátt og því tilvalið að skipuleggja rúnt um Reykjanes og kynnast menningu og sögu svæðisins.

Menntamorgunn Ferðaþjónustunnar: Hvernig höldum við í gott fólk?

Menntamorgnar ferðaþjónustunnar fara nú aftur í gang með lækkandi sól en þeir eru opnir og ókeypis fræðsluviðburðir fyrir starfsfólk og stjórnendur í ferðaþjónustu í boði Hæfniseturs ferðaþjónustunnar, Samtaka ferðaþjónustunnar og Markaðsstofa landshlutanna.

Almyrkvaverkefninu formlega lokið

Ferðaþjónustudagar 2026: Suðurkjördæmi

Samtök ferðaþjónustunnar, Markaðsstofa Suðurlands og Markaðsstofa Reykjaness boða til opins fundar á Hótel Selfossi fimmtudaginn 15. október kl. 17–19 undir yfirskriftinni Mótvindur – Eru stjórnvöld helsta hindrun ferðaþjónustunnar? Þar verður rætt um boðaðar skatta- og gjaldahækkanir á greinina og þingmenn kjördæmisins sitja fyrir svörum.

Kynningarfundur vegna úthlutunar úr Framkvæmdasjóði ferðamannastaða

Öryggismerkingar komnar upp við Valahnúk og Brú milli heimsálfa

Green Footprint: Partners develop responsible travel resources in Rome

Green Footprint partners met in Rome on 7–8 September to review new educational videos and plan the next stages of the project, which encourages young travellers to make a positive contribution to the places they visit.

Green Footprint: Unnið að fræðsluefni um ábyrga ferðamennsku á verkefnafundinum í Róm

Samstarfsaðilar Green Footprint verkefnisins hittust í Róm dagana 7.–8. september. Á fundinum var farið yfir ný fræðslumyndbönd og unnið að næstu skrefum verkefnisins sem hvetur ungt fólk til að hafa jákvæð áhrif á staðina sem það heimsækir.

Reykjanes kynnt á Vestnorden í Grænlandi 2026

Markaðsstofa Reykjaness kynnti svæðið og Eldfjallaleiðina á Vestnorden í Grænlandi. Í kjölfarið tók við kynnisferð þar sem sjö erlendir ferðaskipuleggjendur fengu að kynnast Reykjanesi, höfuðborgarsvæðinu og Suðurlandi af eigin raun.

Reykjanes Geopark attends EGN conference in Finland

Representatives of Reykjanes Geopark attended the EGN conference in Finland in September, presenting projects on education, the 2026 total solar eclipse, regenerative tourism and the community in Grindavík. GeoCamp and Katla Geopark were also represented among the participants from Iceland.

Reykjanes jarðvangur tók þátt í EGN-ráðstefnunni í Finnlandi

Fulltrúar Reykjanes jarðvangs tóku þátt í EGN-ráðstefnunni í Finnlandi í september og kynntu þar verkefni sem tengjast menntun, sólmyrkvanum 2026, endurnýjandi ferðaþjónustu og samfélaginu í Grindavík. Fulltrúar GeoCamp og Kötlu jarðvangs voru einnig meðal þátttakenda frá Íslandi.