Áfangastaðaáætlun Reykjaness komin á eigin vef
Markaðsstofa Reykjaness hefur opnað nýtt vefsvæði fyrir Áfangastaðaáætlun Reykjaness 2024–2027. Þar er á einum stað að finna áætlunina sjálfa, áherslur og aðgerðir, uppbyggingarverkefni á svæðinu og fróðleik um þróun ferðaþjónustu á Reykjanesi.