Skip to content

Or try searching by Category and/or Location

Leiðin að settu marki?

September 14 at 16:00-17:00

Price description

2900 ISK

Tríóið Öræfi var stofnað árið 2025 og eru meðlimir þess: Ásdís Arnardóttir sellóleikari, Sóley Þrastardóttir flautuleikari og Þórunn Harðardóttir sem leikur á víólu.

Samsetning tríósins er mjög óvenjuleg og hljóðfærin harla ólík, sem vafalaust er ein af ástæðum þess að ekki hafa mörg tónverk verið samin með þessari skipan, en tríóið státar sig af því að hafa tekið á þeim flestum.

Tónleikarnir eru um klukkutími að lengd og gefa áhorfendum tækifæri til að kynnast kammermúsík á nýjan en þó aðgengilegan hátt, heyra þessi ólíku hljóðfæri spila saman og mynda skemmtilega margslungna heild. Tríóið Öræfi er ákaflega stolt af því að fá að frumflytja verk Báru Sigurjónsdóttur “Leiðin að settu marki?”, en verkið er hluti af stærri heild sem tónskáldið hefur unnið að síðustu misseri, en þaðan er einmitt heiti tónleikanna fengið.

GPS points

N63° 59' 23.625" W22° 33' 0.947"

Location

Hljómahöll

Phone